Downs-heilkenni (stundum nefnt heilkenni þrístæðu 21) er litningafrávik sem veldur þroskahömlun.
Fólk með Downs-heilkenni, áður fyrr nefnt mongólítar, hefur 3 eintök af litningi númer 21 eða alls 47 litninga. Þau einkenni sem teljast til Downs-heilkennis eru meðal annars: lág vöðvaspenna, skásett augu, flöt nefrót og bein lína þvert yfir lófa.
Heilkennið er kennt við enska lækninn John Langdon Down sem árið 1866 benti á lík einkenni einstaklinga með þroskahömlun. Árið 1959 sýndi franski prófessorinn Jérôme Lejeune að fólk með Downs-heilkenni hefði aukalitning í frumum sínum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Downs-heilkenni, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.