Cuxhaven

Cuxhaven er hafnarborg í þýska sambandslandinu Neðra-Saxlandi með 48 þúsund íbúa (31.

desember">31. desember 2013). Þangað hafa íslensk fiskiskip siglt svo árum skipti. Cuxhaven og Hafnarfjörður eru vinabæir.

Skjaldarmerki Cuxhavens Lega Cuxhavens við mynni Saxelfar
Cuxhaven
Cuxhaven
Upplýsingar
Sambandsland: Neðra-Saxland
Flatarmál: 161,91 km²
Mannfjöldi: 48.325 (31. desember 2013)
Þéttleiki byggðar: 298/km²
Hæð yfir sjávarmáli: 2 m
Vefsíða: www.cuxhaven.de

Lega

Cuxhaven 
Hluti hafnarinnar. Til vinstri er fiskmarkaðurinn.

Cuxhaven liggur á nyrsta odda Neðra-Saxlands, við suðurmynni árinnar Saxelfar (Elbe). Næstu borgir eru Bremerhaven til suðurs (35 km) og Hamborg til suðausturs (70 km).

Skjaldarmerki

Skjaldarmerki Cuxhaven er gamla innsiglingarmerkið á gulum grunni. Neðst má sjá í bláan sjóinn. Merkið var tekið upp 1913.

Orðsifjar

Svæðið hét upphaflega Koogshaven. Það er dregið af orðunum Koog og Hafen. Koog merkir leirur eða flæðiland sem verið er að þurrka og gera nýtilegt. Að skrifa -haven með v-i er saxneskur (lágþýskur) ritháttur.

Söguágrip

Cuxhaven 
Rækjubátur frá Cuxhaven

1394 eignaðist Hamborg svæðið. Þar var mynduð lítil höfn og virki gegn sjóræningjum. 1872 var litla höfnin sameinuð landsvæðinu í kring og úr því myndaðist lítill bær. Hann var á þessum tíma enn í eigu Hamborgar. 1883 var lítil herstöð sett upp í bænum, ásamt því að Cuxhaven varð að heimahöfn nokkurra herskipa til að gæta innsiglingarinnar í Saxelfi og innsiglingarinnar í Kílarskurðinn Norðursjávarmegin. 1907 sameinuðust nokkrir litlir bæir í nærsveitum Cuxhaven, sem þar með fékk loks borgarréttindi. Það var þó ekki fyrr en 1937 að Cuxhaven varð að eigið sveitarfélagi, er nasistar slitu tengslin við Hamborg. Í heimstyrjöldinni síðari fóru fram ýmsar tilraunir með eldflaugum í borginni. Hún slapp að öllu leyti við loftárásir stríðsins.

Vinabæir

Cuxhaven á sér nokkra vinabæi, þar á meðal Hafnarfjörð á Íslandi. Í Hafnarfirði er gata sem heitir Cuxhavengata og í Cuxhaven er torg sem heitir Hafnarfjordurplatz. Aðrir vinabæir Cuxhavens eru meðal annars Nuuk á Grænlandi.

Íþróttir

Cuxhaven 
Strandíþróttir í Cuxhaven
  • Á sumrin fer árlega fram alþjóðlegt frjálsíþróttamót.
  • Maraþonhlaup er haldið árlega um mánaðamótin mars/apríl. Styttri vegalengdir eru einnig í boði.
  • Beach Events er heiti á nokkrum strandíþróttagreinum sem haldnir eru í Cuxhaven. Hér er um handbolta, fótbolta, blak, körfubolta, ruðningur og aðrar íþróttagreinar að ræða. Kvennamótið í strandhandbolta er ætíð haldið í Cuxhaven. Árið 2006 var Evrópumótið í þeirri grein haldið þar. Í tengslum við það eru tugir veitingabása settir upp við ströndina, ásamt diskóteki fyrir þátttakendur og áhorfendur.

Viðburðir

  • Í Cuxhaven er árlega haldnar kappreiðar á leirunum (Duhner Wettrennen). Hér er um veðreiðar með hestum að ræða og hlaupa hestarnir yfir leirurnar, en þegar fjarar út þá myndast víðáttumiklar leirur. Hugmyndin var sú að halda veðreiðar „á sjávarbotni“. Samfara veðreiðunum er einnig ýmislega annað í gangi, svo sem fallhlífastökk og flugsýning. Veðreiðarnar eru gríðarlega vinsælar í Þýskalandi og hafa farið fram í rúma öld. Þær fara fram á sunnudegi ýmist í júlí eða ágúst (það verður að vera fjara kl. 13 á þeim degi).

Frægustu börn borgarinnar

  • (1963) Jochen Fraatz handboltakappi (markahæsti leikmaður þýska landsliðsins)

Byggingar og kennileiti

Cuxhaven 
Siglingamerkið Kugelbake er einkennismerki Cuxhavens
  • Alte Liebe (Gamla ástin) er heiti á útsýnispöllum sem reistir hafa verið á hafnargarði í höfninni.
  • Ritzebüttel-kastali var aðsetur amtmannsins frá Hamborg í gegnum tíðina. Hann var reistur 1340. Í kastalagarðinum er stríðsminnisvarði um fallna hermenn í heimstyrjöldinni fyrri.
  • Siglingamerkið Kugelbake er einkennismerki Cuxhavens. Það stendur á baðströnd við innsiglinguna í Cuxhaven, á nyrsta punkti Neðra-Saxlands. Landfræðilega er miðað við að Saxelfur endi við merkið og sjórinn taki við. Breidd Saxelfar á þessum stað eru 18 km. Merkið var reist 1703 og er 30 metra hátt. Þar sem það er úr viði, þurfti að endurnýja merkið á um það bil 30 ára fresti. Það var gert í síðasta sinn 1924 og er núverandi merki því orðið æði gamalt. Það er friðað í dag.

Tilvísanir

Heimildir

Fyrirmynd greinarinnar var „Cuxhaven“ á þýsku útgáfu Wiki. Sótt apríl 2010.

Tags:

Cuxhaven LegaCuxhaven SkjaldarmerkiCuxhaven OrðsifjarCuxhaven SöguágripCuxhaven VinabæirCuxhaven ÍþróttirCuxhaven ViðburðirCuxhaven Frægustu börn borgarinnarCuxhaven Byggingar og kennileitiCuxhaven TilvísanirCuxhaven HeimildirCuxhaven201331. desemberHafnarfjörðurNeðra-Saxland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

GíneuflóiHWKvennafrídagurinnFenrisúlfurSamkynhneigðAbýdos (Egyptalandi)LundiPálmasunnudagurSaga GarðarsdóttirÞingvellirStóra-LaxáPersónur í söguheimi Harry Potter-bókannaRonja ræningjadóttirFallin spýtaPizzaSamheitaorðabókÓlafur Ragnar GrímssonÚranusMarie AntoinetteFermingSamnafnKváradagurTyrkjarániðEignarfallsflótti17. öldinPíkaKaliforníaNýja-SjálandEigindlegar rannsóknirFlateyriHornstrandirArnar Þór ViðarssonMisheyrnShrek 2Mannshvörf á ÍslandiSigrún Þuríður GeirsdóttirStórar tölurMaríuerlaFallbeygingMarðarættWayback MachineReykjanesbærHelförinKleppsspítaliRúmeníaVBarack ObamaÓlafur Teitur GuðnasonKristniTímabeltiNorðurlöndinÍslenska stafrófiðGeirvartaØSvampur SveinssonEldgosaannáll ÍslandsFjallagrösBVesturbyggðUngverjalandKonungar í JórvíkLýsingarorðÖræfasveitListi yfir íslensk skáld og rithöfundaFrakklandStuðlabandiðAskur YggdrasilsAlnæmiFagridalurSkjaldarmerki ÍslandsJósef StalínWikiBenedikt Sveinsson (f. 1938)Alþingiskosningar 2021Skapahár🡆 More