Austur-Tímor: Ríki í Suðaustur-Asíu

Austur-Tímor eða Tímor-Leste er ríki í Suðaustur-Asíu.

Það nær yfir eystri hluta eyjunnar Tímor, sem er stærst Litlu-Sundaeyja, útlenduna Oecussi-Ambeno á Vestur-Tímor (sem tilheyrir Indónesíu) og eyjarnar Atauro og Jaco. Landið hét áður Portúgalska Tímor þar til Indónesar réðust inn í landið árið 1975. Þeir héldu því til 1999 þegar landið fékk sjálfstjórn með fulltingi Sameinuðu þjóðanna. Landið fékk svo fullt sjálfstæði þann 20. maí 2002.

Lýð­stjórnar­lýð­veld­ið Tímor-Leste
Repúblika Demokrátika Timor Lorosa'e
República Democrática de Timor-Leste
Fáni Austur-Tímor Skjaldarmerki Austur-Tímor
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Unidade, Acção, Progresso (portúgalska)
Eining, aðgerðir, framfarir
Þjóðsöngur:
Pátria
Staðsetning Austur-Tímor
Höfuðborg Dili
Opinbert tungumál tetum, portúgalska
Stjórnarfar Lýðveldi

Forseti José Ramos-Horta
Forsætisráðherra Xanana Gusmão
Sjálfstæði frá Portúgal
 • Viðurkennt 28. nóvember 1975 
 • Endurheimt 20. maí 2002 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
154. sæti
15.007 km²
~0
Mannfjöldi
 • Samtals (2021)
 • Þéttleiki byggðar
153. sæti
1.340.513
78/km²
VLF (KMJ) áætl. 2020
 • Samtals 5,315 millj. dala (180. sæti)
 • Á mann 4.031 dalir (193. sæti)
VÞL (2019) Austur-Tímor: Landfræði, Stjórnmál, Tilvísanir 0.606 (141. sæti)
Gjaldmiðill bandaríkjadalur
Tímabelti UTC+9
Þjóðarlén .tp
Landsnúmer +670

Portúgalir stofnuðu verslunarstaði á Tímor á 16. öld einkum vegna þess hve þar óx mikið af sandalviði. Nýlendan Portúgalska Tímor var stofnuð árið 1769 þegar Portúgalir stofnuðu borgina Dili. Alþjóðadómstóllinn í Haag staðfesti landamærin milli Portúgalska Tímor og vesturhlutans sem Hollendingar réðu yfir árið 1914. Í kjölfar Nellikubyltingarinnar í Portúgal árið 1974 hurfu Portúgalir frá nýlendunni sem leiddi til borgarastyrjaldar. Annar stríðsaðilinn, Fretilin, lýsti yfir stofnun sjálfstæðs ríkis 28. nóvember 1975. Indónesía gerði innrás í desember sama ár og lýsti Austur-Tímor 27. hérað Indónesíu í júlí árið eftir. Ofbeldi og kúgun einkenndu hernám Austur-Tímor og skæruliðahreyfingin Falintil barðist gegn hernámsliðinu allt til 1999. Blóðbaðið í Dili árið 1991 varð til þess að alþjóðasamfélagið snerist gegn Indónesíu og eftir fall Suhartos árið 1998 var ákveðið að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Austur-Tímor undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna. Sjálfstæði Austur-Tímor gekk formlega í gildi árið 2002.

Austur-Tímor er annað tveggja landa í Asíu þar sem meirihluti íbúa er kaþólskrar trúar. Um helmingur landsmanna er ólæs og 37,4% landsmanna eru undir alþjóðlegum fátæktarmörkum. Efnahagur Austur-Tímor hefur þó vaxið hratt undanfarin ár. Helstu útflutningsafurðir landsins eru olía og gas, auk kaffis.

Landfræði

Austur-Tímor liggur á mörkum Suðaustur-Asíu og Eyjaálfu. Eyjan Tímor er austust Litlu-Sundaeyja. Norðan við eyjuna eru Ombai-sund, Wetar-sund og Bandahaf. Tímorhaf skilur milli eyjunnar og Ástralíu í suðri. Indónesíska héraðið Austur-Nusa Tenggara liggur vestan við Austur-Tímor. Landið er 14.919 km2 að stærð. Efnahagslögsaga Austur-Tímor er 70.326 km2.

Stór hluti landsins er fjöll og hæsti tindur þess er Tatamailau (líka þekkt sem Ramelau-fjall) 2.963 metrar á hæð. Á eyjunni ríkir heitt og rakt hitabeltisloftslag með greinilegt regntímabil og þurrkatímabil. Höfuðborgin, stærsta borgin og aðalhafnarborgin er Dili, en önnur stærsta borgin er Baucau á austurhluta eyjunnar. Austur-Tímor er milli 8. og 10. breiddargráðu suður og 124. og 128. lengdargráðu austur.

Austasti hluti Austur-Tímor eru Paitchau-fjöll og stöðuvatnið Ira Lalaro þar sem fyrsta náttúruverndarsvæði landsins er, Nino Konis Santana-þjóðgarðurinn. Þar er að finna síðustu leifarnar af þurrum hitabeltisskógi í landinu. Þar lifa margar einstakar jurta- og dýrategundir og mannabyggð er dreifð. Undan norðurströndinni eru mörg kóralrif sem eru talin í hættu.

Stjórnmál

Austur-Tímor: Landfræði, Stjórnmál, Tilvísanir 
Xanana Gusmão, fyrsti forseti Austur-Tímor eftir að hernámi Indónesíu lauk.

Forseti Austur-Tímor er þjóðhöfðingi landsins og er kosinn í beinum kosningum til fimm ára. Vald forseta er takmarkað, en hann skipar forsætisráðherra og hefur neitunarvald gagnvart löggjöf. Í kjölfar þingkosninga skipar forsetinn oftast leiðtoga þess flokks sem unnið hefur meirihluta þingsæta sem forsætisráðherra Austur-Tímor og ríkisstjórn samkvæmt ráðleggingum hans. Forsætisráðherrann er stjórnarleiðtogi.

Þing Austur-Tímor kemur saman í einni deild. Þingmenn eru kjörnir í almennum kosningum til fimm ára í senn. Fjöldi sæta er breytilegur frá 52 til 65. Stjórnarskrá Austur-Tímor er byggð á stjórnarskrá Portúgals. Uppbygging innlendrar stjórnsýslu og stofnana er enn á frumstigi. Meðal helstu stofnana eru Ríkislögregla Austur-Tímor, Flugmáladeild Austur-Tímor og Innflytjendastofnun Austur-Tímor.

Ríkislögregla Austur-Tímor var stofnuð af Sameinuðu þjóðunum árið 2002, áður en landið fékk fullveldi, til að viðhalda lögum og reglu í landinu.

Stjórnsýslueiningar

Austur-Tímor skiptist í fjórtán sveitarfélög (municípios) sem aftur skiptast í 66 stjórnsýslumiðstöðvar (postos administrativos), 452 þorp (sucos) og 2.233 hverfi (aldeias).

Austur-Tímor: Landfræði, Stjórnmál, Tilvísanir 
Sveitarfélög Austur-Tímor
  1. Oecusse
  2. Liquiçá
  3. Dili
  4. Manatuto
  5. Baucau
  6. Lautém
  7. Bobonaro
  8. Ermera
  9. Aileu
  10. Viqueque
  11. Cova Lima
  12. Ainaro
  13. Manufahi
  14. Atauro


Tilvísanir

Austur-Tímor: Landfræði, Stjórnmál, Tilvísanir   Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Austur-Tímor LandfræðiAustur-Tímor StjórnmálAustur-Tímor TilvísanirAustur-Tímor1975199920. maí2002IndónesíaLitlu-SundaeyjarPortúgalska TímorSameinuðu þjóðirnarSuðaustur-AsíaÚtlenda

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Arnar Þór JónssonSameinuðu þjóðirnarStýrivextirSterk sögnHvítasunnudagurBubbi MorthensAskur YggdrasilsKjölur (fjallvegur)NorðurálArnaldur IndriðasonABBALeifur heppniIvar Lo-JohanssonAxlar-BjörnHugmyndLakagígarNo-leikurJoe BidenHamskiptinÍslensk krónaVín (Austurríki)LandnámsöldSamtengingMS (sjúkdómur)Fiann PaulSporvalaInterstellarTahítíRisahaförnRaunvextirÞjóðleikhúsiðSönn íslensk sakamálHólar í Hjaltadal2020Pétur Einarsson (f. 1940)FiskurEndurnýjanleg orkaFriðrik DórHnúfubakurTom BradyÆðarfuglFjárhættuspilStjórnarráð ÍslandsRómarganganSjálfsofnæmissjúkdómurSigurður Ingi JóhannssonListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999Fylki BandaríkjannaME-sjúkdómurGerjunHelga ÞórisdóttirMynsturNjáll ÞorgeirssonÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaBorgaralaunListi yfir íslensk mannanöfnBrúttó, nettó og taraRóbert WessmanHalldór LaxnessJón ArasonTöluorðÚrvalsdeild karla í körfuknattleikKristján EldjárnFullveldiLoftskeytastöðin á MelunumSongveldiðAkureyrarkirkjaStella í orlofiÓpersónuleg sögnListi yfir úrslit MORFÍSGarðabær🡆 More