Alþingishúsið

Alþingishúsið er bygging sem stendur við Austurvöll í Reykjavík og er aðsetur Alþingis Íslendinga.

Húsið teiknaði Ferdinand Meldahl, forstöðumaður listaakademíunnar í Kaupmannahöfn. Það var reist árið 1881, en byggingaverktaki þess var F. Bald, danskur maður. Húsið var reist úr höggnu íslensku grágrýti (dólerít). Áður, á árunum 1845-1881, hafði Alþingi starfað í gamla Latínuskólanum sem í dag hýsir Menntaskólann í Reykjavík.

Alþingishúsið
Alþingishúsið í Reykjavík.

Húsið reist

Árið 1880 var hafist handa við byggingu Alþingishússins við Kirkjustíginn, en áður hafði verið gert ráð fyrir að húsið yrði byggt við Bakarastíg, þar sem nú er Bankastræti. Halldór Kr. Friðriksson yfirkennari seldi þá land sitt við Kirkjustíginn fyrir 2.500 krónur og þótti óheyrilegt verð í þá daga. Þar hafði áður verið kálgarður hans og þar var Alþingishúsið reist.

Við byggingu hússins, sem og fangahússins við Skólavörðustíg, sem hafði verið reist ellefu árum áður, eða árið 1872, lærðu reykvískir iðnaðarmenn að höggva og tilreiða grjót úr holtunum til húsabygginga.

Kringlan á bakhliðinni er síðan byggð 1908-9 en hún var upphaflega ætluð fyrir Hannes Hafstein sem og sem risnuherbergi fyrir móttökur erlenda þjóðhöfðingja og gesta.

Löngu síðar eða 2002 er önnur viðbygging gerð, Skálinn svonefndi.

Tenglar

Tilvísanir

Alþingishúsið   Þessi Reykjavíkurgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

64°8′48.25″N 21°56′24.66″V / 64.1467361°N 21.9401833°V / 64.1467361; -21.9401833

Tags:

18451881AlþingiAusturvöllurFerdinand MeldahlGrágrýtiKaupmannahöfnMenntaskólinn í ReykjavíkReykjavík

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Skosk gelískaFenrisúlfurVilhjálmur Vilhjálmsson (söngvari)SkreiðSjálfstæðar og ósjálfstæðar sagnirKróatíaGaldra–LofturJosip Broz TitoGunnar HelgasonHeklaÍsraelHafþór Júlíus Björnsson2008KristniReykjavíkBúrhvalurGæsalappirKúariða28. marsOsturPáskarAuður djúpúðga KetilsdóttirSnjóflóðNeymarEggert ÓlafssonKommúnismiTyrklandEddukvæðiPálmasunnudagurBerkjubólgaDonald TrumpÍsbjörnSiðaskiptin á ÍslandiAusturríkiAlfaKirgistanSýslur ÍslandsÞór (norræn goðafræði)TjaldurJarðkötturVenus (reikistjarna)NorðurlöndinAriana Grande1936SíleMenntaskólinn í KópavogiSnæfellsbærEdda FalakKynlaus æxlunÁrneshreppurBankahrunið á ÍslandiStefán MániHallgrímskirkjaRæðar tölur27. marsForsetning1976AtviksorðGullGrænlandISO 8601Giordano BrunoAserbaísjanJón Atli BenediktssonDyrfjöllLátrabjargJón GunnarssonÓlafur Grímur BjörnssonTenerífeNafnhátturMerkúr (reikistjarna)ArgentínaMinkurKúbaÞvermálSilungur🡆 More