Umskurður

Umskurður á við það að skera um forhúð getnaðarlimsins.

Umskurður getur verið stundaður af læknisfræðilegum ástæðum eða trúarlegum, til dæmis er hefð fyrir umskurð í gyðingdómi og íslam. Umskurður er víða stundaður í Miðausturlöndum og Afríku af trúarlegum ástæðum, bæði af múslimum og eþíópískum kristnimönnum.

Umskurður
Umskorinn getnaðarlimur

Eftir umskurðinn er reðurhúfan sýnileg jafnvel þegar getnaðarlimurinn er linur. Talið er að tilfinninganæmni getnaðarlimsins minnki eftir umskurð.

Tíðni og staða umskurðar drengja

Umskurður 
Útbreiðslukort af tíðni umskurðar.

Umskurður drengja er stundaður um allan heim. Tíðni umskurðar er þó breytileg eftir löndum og ástæður fyrir honum ólíkar. Umskurður er algengur hjá múslímum og gyðingum, í Bandaríkjunum og í hlutum Suðaustur-Asíu og Afríku sunnan Sahara. Hann er stundaður sjaldnar í Evrópu, Suður-Ameríku, Suður-Afríku og flestum Asíulöndum. Talið er að um það bil þriðjungur karlmanna í heimi sé umskorinn.

Danmörk

Samkvæmt Samtökum múslíma í Danmörku láta næstum allir múslímar í Danmörku umskera drengjana sína. Um það bil 15 drengir gyðinga eru umskornir á hverju ári. Danska heilbrigðisstjórnin telur að um það bil 1.000–2.000 danskir drengnir séu umskornir af trúarástæðum á hverju ári í Danmörku.

Ísland

Í janúar 2018 var lagt fyrir Alþingi frumvarp um bann við umskurði drengja nema af heilsufarsástæðum. Bann við umskurði stúlkna hefur verið í gildi frá 2005.

Verði frumvarpið samþykkt gæti brot á lögunum varða við allt að sex ára fangelsisvist. Frumvarpið nýtur þverpólitísks stuðnings. Yfirrabbínar í Danmörku og Noregi hafa þó mótmælt frumvarpinu og óttast að það gæti sett á stofn „hættulegt fordæmi“ fyrir önnur lönd. Samtök gyðinga á Norðurlöndunum hafa sakað íslenska þingmenn um árás á gyðingdóm og mótmælir frumvarpinu harðlega. Samtökin sendu íslenskum þingmönnum yfirlýsingu um mótmæli í febrúar 2018. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaðurinn sem lagði frumvarpið fyrir Alþingi, sagði að það væri „ákveðin yfirgangssemi að grípa svona inn í störf þingsins“ og að sér fyndist afskipti á þessu stigi máls „ansi gróf“.

Í febrúar 2018 fundaði Menachem Mar­gol­in, formaður Sam­taka evr­ópskra gyðinga, með Bergdísi Ellertsdóttur, sendiherra Íslands í Belgíu, um frumvarpið. Á fundinum var rætt um að frumvarpið nyti ekki stuðnings allra íslenskra þingmanna og að „samtal við íslenska þingmenn um málið“ myndi halda áfram.

Umsagnir

Ýmsir hafa sent umsögn um málefnið og sagði biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, að hætta væri á að „gyðingdómur og íslam verði gerð að glæpsamlegum trúarbrögðum og að einstaklingar sem aðhyllast þau verði bannaðir hér á landi eða óvelkomnir“. Talsmaður kaþólsku kirkjunnar á Íslandi líkti banni við útrýmingarherferð nasista.

Samtökin Siðmennt styður bann við umskurði og að um „alvarlegt og óafturkræft inngrip“ væri um að ræða. Ennfremur að „það sé skýrt að réttur barnsins skuli vera siðum og trú yfirsterkari“.

Anne Lind­boe umboðsmaður barna í Noregi styður frumvarpið og segist bjartsýn á að bann við umskurði drengja verði innleitt þar í landi í framtíðinni.

Yfir 400 íslenskir læknar skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem þeir „lýstu yfir ánægju með frumvarpið til breytinga á almennum hegningarlögum þar sem umskurður drengja verði bannaður nema læknisfræðilegar ástæður liggi til grundvallar.“

Kári Stefánsson stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar hefur gagnrýnt frumvarpið. Hann sagði að það „[myndi] í prinsipp­in­u gera það ólög­legt að ver­a ­gyð­ingur á Íslandi vegna þess að umskurð­ur­inn (brit milah) er órjúf­an­legur hluti af sjálfs­mynd ­gyð­inga.“ Auk þess sagði hann að bann við umskurði „[myndi vega] að rétti for­eldra til þess að taka ákvarð­anir fyrir hönd barna sinna sem hefur verið höndl­aður sem allt að heil­agur á Íslandi fram til­ þessa.“

Yfir 1.100 íslenskir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður hafa skrifað undir lista frumvarpinu til stuðnings.

Heimildir

Tags:

Umskurður Tíðni og staða umskurðar drengjaUmskurður HeimildirUmskurðurAfríkaForhúðGetnaðarlimurGyðingdómurMiðausturlöndÍslam

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SeyðisfjörðurElísabet JökulsdóttirISO 8601IKEAAftökur á ÍslandiJürgen KloppNorræn goðafræðiMarie AntoinetteÁrbærAlmenna persónuverndarreglugerðinBenito MussoliniBreiðdalsvíkBjörgólfur Thor BjörgólfssonHeimsmetabók GuinnessMörsugurÁsdís Rán GunnarsdóttirÁstandiðEyjafjallajökullIndriði EinarssonPortúgalRúmmálHin íslenska fálkaorðaBaldurJón EspólínListi yfir íslenska tónlistarmennListi yfir landsnúmerLandnámsöldHallgerður HöskuldsdóttirSvartahafMelkorka MýrkjartansdóttirTyrklandVopnafjarðarhreppurTaívanHafnarfjörðurLýsingarhátturÁlftÍslenskar mállýskurBenedikt Kristján MewesListi yfir morð á Íslandi frá 2000Sandra BullockFreyjaHringtorgBríet HéðinsdóttirFullveldiBloggSauðanes (N-Þingeyjarsýslu)EvrópusambandiðDavíð OddssonEldgosaannáll ÍslandsSmokkfiskarTómas A. TómassonSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirListi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennÞrymskviðaSkordýrMatthías JochumssonRagnar JónassonBoðorðin tíuListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiPétur EinarssonÍslenska kvótakerfiðKnattspyrnaJafndægurTjaldurKartaflaAaron MotenMicrosoft WindowsStúdentauppreisnin í París 1968Listi yfir fylki og yfirráðasvæði Bandaríkjanna eftir stærðFrosinnForseti ÍslandsMyriam Spiteri DebonoYrsa SigurðardóttirNoregurFallbeygingÁsgeir ÁsgeirssonEfnaformúla🡆 More