Sykursýki er heiti yfir sjúkdóma sem einkennast af of háum styrki sykurs í blóðinu.
Hár blóðsykur leiðir til þess að maður pissar mikið, og verður þyrstur og svangur. Önnur einkenni geta verið sjóntruflanir, höfuðverkur, þreyta, að sár grói seint, og kláði.
Í sykursýki nær líkaminn ekki að viðhalda réttum styrk sykurs í blóði og því fær fólk oft líka mjög lágan blóðsykur. Það er vanalega ekki hættulegt að vera með lágan blóðsykur, en einkennin geta verið óróleikatilfinning, sviti, skjálfti, og í verri tilfellum ruglingur, árásargirni, og yfirlið. Þessum einkennum svipar nokkuð til þess að viðkomandi sé undir áhrifum áfengis, hægt er að losna við þau með því að innbyrða sykur.
Langtíma fylgikvillar sykursýki koma fram yfir 10–20 ár og orsakast aðallega af skemmdum í æðum. Skemmdir í smáu æðunum leiða til skemmda í sjónhimnu augans, í nýrunum, og í taugum.
Til eru nokkrar gerðir af sykursýki en þær helstu eru:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sykursýki, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.