Raúl Modesto Castro Ruz (f.
3. júní 1931) er kúbverskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forseti Kúbu. Hann steig í það embætti þegar bróðir hans, Fidel Castro, settist í helgan stein árið 2008. Árið 2011 var hann útnefndur aðalritari kúbverska kommúnistaflokksins.
Raúl Castro | |
---|---|
Forseti Kúbu | |
Í embætti 24. febrúar 2008 – 19. apríl 2018 | |
Varaforseti | José Ramón Machado Miguel Díaz-Canel |
Forveri | Fidel Castro |
Eftirmaður | Miguel Díaz-Canel |
Aðalritari kúbverska kommúnistaflokksins | |
Í embætti 19. apríl 2011 – 16. apríl 2021 | |
Forveri | Fidel Castro |
Eftirmaður | Miguel Díaz-Canel |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 3. júní 1931 Birán, Kúbu |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Kúbu |
Maki | Vilma Espín (g. 1959; d. 2007) |
Börn | 4 |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Áður en Castro tók við forsetaembættinu var hann einn leiðtoga kúbverska hersins frá 1969 til 2008 og þjónaði því embætti lengur en nokkur annar. Hann var útnefndur forsætisráðherra Kúbu vegna veikinda forvera sinna árið 2006. Castro varð síðan formlega forseti þann 24. febrúar 2008 eftir að Fidel Castro lýsti yfir að hann myndi ekki bjóða sig fram þann 19. febrúar 2008.
Castro var endurkjörinn þann 24. febrúar 2013. Stuttu síðar lýsti hann því yfir að annað kjörtímabilið myndi vera hans síðasta og að hann myndi ekki bjóða sig fram á ný árið 2018. Í ríkissjónvarpinu lýsti hann því yfir þann 21. desember 2017 að hann myndi láta af embætti þann 19. apríl 2018 eftir að þjóðþingið hefði kosið eftirmann hans í kjölfar þingkosninganna það ár.
Castro lét af embætti á tilsettum tíma í apríl 2018. Við forsetaembættinu tók stuðningsmaður Castro-bræðra, Miguel Díaz-Canel. Castro var þó áfram aðalritari kúbverska kommúnistaflokksins þar til hann sagði af sér þann 16. apríl árið 2021.
Fyrirrennari: Fidel Castro |
| Eftirmaður: Miguel Díaz-Canel |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Raúl Castro, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.