Póllandsbolti

Póllandsbolti (enska: Polandball), einnig þekktur sem landabolti, sló í gegn á þýsku spjallborðsíðunni krautchan.net 2009.

Æðið gengur út á fjölda teiknimynda þar sem lönd eru táknuð með kúlulaga persónum sem oft tjá sig með brenglaðri ensku, gera grín af staðalímyndum og alþjóðatengslum landsins. Þessi teiknimyndastíll er kallaður Polandball (þrátt fyrir að engin persóna sé á meðal teiknimyndapersónanna fyrir hönd póllands) og landabolti (eða, sameiginlega, landaboltar).

Póllandsbolti
Endurgerð notanda af Polandball.

Polandball

Polandball hófst í Ágúst 2009 á milli pólskra netnotenda og annara netnotenda á drawball.com. Vefsíðan leyfir netnotendum að teikna hvað sem þá langar til og að teikna yfir verk annara. Pólverjarnir tóku sig saman og teiknuðu pólska fánann á boltann með orðinu "Polska" skrifað á pólsku.

Krautchan.net er þýskt spjallborð með reglulegum heimsóknum frá enskumælandi netnotendum. Upphafsmaður polandball er Falco, breti sem bjó til æðið með Microsoft Paint. Ætlun hans var að koma pólverjanum Wojak úr jafnvægi. Eftir það voru póllands boltarnir teiknaðir af rússum.

Póllandsbolti 
Polandball myndasaga vegna frétta um að Ísland vilji banna klám á netinu

Polandball varð vinsælla í kjölfar flugslyssins 2010 þegar pólski forsetinn, Lech Kaczyński fórst. Forsetinn var táknmynd Póllands, sögu landsins, alþjóðatengsla þess og staðalímynda, með áherslu á stórmennskuæði og margbreytileika landsins. Samskipti á milli landabolta eru skrifuð á brotinni ensku, netslangri og í enda teiknimyndarinnar er pólland sem er vísvitandi táknað með rauðu yfir hvítt (eins og spegilmynd af pólska fánanum) oftast séður grátandi.

Sumar Polandball teiknimyndir byggja á þeirri forsendu að Rússland getur flogið út í geiminn, en Pólland ekki. Ein af vinsælustu Polandball teiknimyndunum byrjar á því að jörðin eigi eftir að verða fyrir risastórum loftstein. Í kjölfarið fara öll lönd sem búa yfir geimferðar tækni frá jörðinni og fara um braut um jörðina. Í lok teiknimyndarinnar er Pólland enn á jörðinni og segir á bjagaðri ensku að pólland geti ekki farið út í geim. Á þennan gamansama mála, setja rússar alla umræðu um yfirburði ríkjanna í bið.

Aðrir landaboltar

Póllandsbolti 
Endurgerð notanda af Ísland í Polandball-stíl.

Polandball getur verið teiknimynd um önnur lönd, en oftast eru þær kallaðar Polandball, þrátt fyrir að þær geta einnig verið kallaðar landaboltar. Samkvæmt Lurkmore.to hefur Bæjaraland og ríki bandaríkjanna, Katalónía og Síbería sinn eigin bolta, á meðal annara. Sum lönd eru táknuð með öðrum formum en kúlu. Singapúr tekur form þríhyrnings, Ísrael tekur form tenings (sem vísun í vísindi gyðinga), Kasakstan tekur form múrsteins og Bretland er sýnt með pípuhatt og einglyrni. Þýskaland í árásarhug er svo í ferningi; "Reichtangle".

Heimildir

Ytri tenglar

Tags:

Póllandsbolti PolandballPóllandsbolti Aðrir landaboltarPóllandsbolti HeimildirPóllandsbolti Ytri tenglarPóllandsbolti2009EnskaLandPersóna

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

MargföldunVestmannaeyjarLokiBjór á ÍslandiEinar BenediktssonMaríuerlaHannes Bjarnason (1971)Þór (norræn goðafræði)Eiríkur blóðöxMaríuhöfn (Hálsnesi)Keila (rúmfræði)1918TikTokXHTMLJafndægurJólasveinarnirLögbundnir frídagar á ÍslandiEgill ÓlafssonGarðar Thor CortesSmáralindBotnssúlurHnísaVallhumallStigbreytingFæreyjarYrsa SigurðardóttirAriel HenryVarmasmiðurKleppsspítaliBarnafossBesta deild karlaSnorra-EddaBrúðkaupsafmæliSverrir Þór SverrissonHéðinn SteingrímssonTaívanEivør PálsdóttirDjákninn á MyrkáÓlafur Egill EgilssonÁlftMatthías JochumssonÍslenska stafrófiðÍslenskt mannanafnÖskjuhlíðSankti PétursborgHelga ÞórisdóttirÞingvallavatnÚkraínaFnjóskadalurÁstþór MagnússonÍslenskir stjórnmálaflokkarTímabeltiUppstigningardagurGaldurDimmuborgirForsetakosningar á Íslandi 1980ParísB-vítamínTómas A. TómassonHafnarfjörðurMicrosoft WindowsListi yfir íslensk kvikmyndahúsCharles de GaulleAndrés ÖndNáttúruvalMarie AntoinetteLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisMáfarKnattspyrnufélagið FramSteinþór Hróar SteinþórssonHallgrímskirkjaListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðHerðubreiðÍrland🡆 More