Newt Gingrich: Bandarískur stjórnmálamaður

Newton Leroy „Newt“ Gingrich (fæddur 17.

júní">17. júní 1943) er bandarískur stjórnmálamaður sem gegndi embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings frá árinu 1995 til ársins 1999. Gingrich sat á þingi fyrir Repúblikanaflokkinn frá 1979 þar til hann sagði af sér 1999 í kjölfar kosninganna 1998 til Bandaríkjaþings þar sem repúblikanaflokkurinn tapaði 5 þingsætum til demókrata. Gingrich hefur í seinni tíð verið harður gagnrýnandi Barack Obama forseta Bandaríkjanna en Gingrich hefur meðal annars skrifað bókina To Save America: Stopping Obama's Secular-Socialist Machine sem var gefin út 2010.

Newt Gingrich
Newt Gingrich: Bandarískur stjórnmálamaður
Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
Í embætti
4. janúar 1995 – 3. janúar 1999
ForveriTom Foley
EftirmaðurDennis Hastert
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir 6. kjördæmi Georgíu
Í embætti
3. janúar 1979 – 3. janúar 1999
ForveriJohn Flynt
EftirmaðurJohnny Isakson
Persónulegar upplýsingar
Fæddur17. júní 1943 (1943-06-17) (80 ára)
Harrisburg, Pennsylvanía, Bandaríkjunum
StjórnmálaflokkurRepúblikanaflokkurinn
MakiJackie Battley (1962–1981)
Marianne Ginther (1981–2000)
Callista Bisek (2000–)
Börn2
HáskóliEmory-háskóli
Tulane-háskóli
StarfStjórnmálamaður, rithöfundur
UndirskriftNewt Gingrich: Bandarískur stjórnmálamaður

Ævi og menntun

Newt Gingrich var fæddur þann 17. júní árið 1943 í Harrisburg, Pennsylvaníu. Hann lærði sagnfræði við Emory-háskóla í Atlanta og síðar Tulane-háskóla í New Orleans, en við þann síðarnefnda hlaut hann doktorsgráðu í evrópskri samtímasagnfræði árið 1971. Doktorsritgerð Gingrich fjallaði um menntastefnu Belga í Kongó á árunum 1945 til 1960. Að loknu námi tók Gingrich upp kennslu á háskólastigi og kenndi allt fram til 1978.

Stjórnmál

Gingrich bauð sig fram til fulltrúadeildarinnar árin 1974 og 1976 en hafði ekki erindi sem erfiði og þurfti að lúta í lægra haldi fyrir demókratanum Jack Flynt sem var þá fulltrúi á þingi fyrir Georgíufylki, heimafylki Gingrich. Árið 1978 bauð Gingrich sig fram á nýjan leik. Þá gaf Flynt hinsvegar ekki kost á sér til endurkjörs og Gingrich sigraði demókratann Virginia Shapard örugglega . Gingrich sat á þingi frá 1979 til 1999.

Í janúar 1995 var Gingrich kjörinn forseti fulltrúadeildarinnar og varð í kjölfarið, í nokkrum skilningi, andlit repúblikanaflokksins og andstöðu hans gegn þáverandi forseta Bandaríkjanna, Bill Clinton. Í þingkosningunum 1998 galt repúblikanaflokkurinn afhroð og tapaði 5 sætum til andstæðinga sinna í demókrataflokknum. Í kjölfarið lét Gingrich af embætti sínu bæði sem forseti fulltrúadeildarinnar og sem fulltrúadeildarþingmaður.

Gingrich hefur haldið áfram að vera hávær rödd í bandarískri stjórnmálaumræðu og er tíður gestur í útvarps- og sjónvarpsþáttum sem snúa að stjórnmálum. Gingrich gaf kost á sér í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2012. Hann vann próf­kjör Repúblikana í tveim­ur fylkjum, Suður-Karólínu og Georgíu, en dró sig úr forvalinu þann 2. maí 2012 eftir að ljóst var orðið að Mitt Romney hefði tryggt sér útnefningu flokksins.

Heimildir


Fyrirrennari:
Tom Foley
Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
(1995 – 1999)
Eftirmaður:
Dennis Hastert


Tags:

17. júní194319791995199819992010BandaríkinBandaríkjaþingBarack ObamaDemókrataflokkurinnForseti BandaríkjannaRepúblikanaflokkurinnStjórnmálamaður

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Hrafna-Flóki VilgerðarsonBjór á ÍslandiStefán MániRonja ræningjadóttirKjarnafjölskyldaXHTMLTékklandÍslenski hesturinnÁrnessýslaHjálpDanmörkÍtalíaRefilsaumurKosningarétturHæstiréttur BandaríkjannaBaldurSpánnKonungur ljónannaRaufarhöfnBjörk GuðmundsdóttirKörfuknattleikurForsetakosningar á Íslandi 1996SkordýrBárðarbungaPáskarEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024ListeriaJóhann Berg GuðmundssonGæsalappirGarðabærNoregurKnattspyrnufélagið ValurReykjavíkKynþáttahaturNorræna tímataliðSmáríkiEyjafjallajökullAlaskaTjörn í SvarfaðardalSamningurEfnaformúlaJohn F. KennedyKlóeðlaIkíngutForsetakosningar á Íslandi 2020KatlaBergþór PálssonAkureyriSeldalurHarry PotterLundiTaugakerfiðEldurGeirfuglFornaldarsögurKnattspyrnufélagið HaukarBreiðdalsvíkListi yfir íslenska sjónvarpsþætti26. aprílListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðDóri DNADómkirkjan í ReykjavíkLandsbankinnc1358TenerífeCarles PuigdemontEiður Smári GuðjohnsenFiskurJapanMarie AntoinetteArnar Þór JónssonVestmannaeyjar🡆 More