Mönchengladbach er stórborg í þýska sambandslandinu Norðurrín-Vestfalíu og er með 260 þúsund íbúa (2018).
Hún er hluti af Rín-Ruhr-stórborgarsvæðinu.
Skjaldarmerki Mönchengladbach | Lega Mönchengladbach í Þýskalandi |
---|---|
Upplýsingar | |
Sambandsland: | Norðurrín-Vestfalía |
Flatarmál: | 170,45 km² |
Mannfjöldi: | 260 þús (2018) |
Þéttleiki byggðar: | 1499/km² |
Hæð yfir sjávarmáli: | 70 m |
Vefsíða: | www.moenchengladbach.de |
Mönchengladbach liggur fyrir suðvestan Ruhr-héraðið, vestan Rínarfljóts, en rétt austan við hollensku landamærin. Næstu borgir eru Düsseldorf til austurs (20 km), Köln til suðausturs (40 km) og Roermond í Hollandi til vesturs (20 km).
Skjaldarmerki borgarinnar er þrískiptur skjöldur. Til vinstri er hvítur bagall á bláum grunni, sem vísar til fyrstu munkana. Til hægri er svartur kross á gulum grunni, það vísar til greinafanna frá Bylandt sem ríktu í héraðinu. Efst er hvít takkalína á rauðum grunni en það vísar til greifanna frá Quadt sem einnig ríktu í héraðinu til 1796. Skjaldarmerki þetta var formlega tekið upp 1977.
Borgin hét upphaflega Monich Gladebach og München Gladbach. München er nefnt eftir munkum sem bjuggu í klaustrinu sem byggðin myndaðist í kringum. Gladbach merkir glansandi lækur (glad = glans, Bach = lækur). Forliðurinn München féll þó snemma niður og hét borgin Gladbach í margar aldir. 1888 var heiti borgarinnar aftur breytt í München Gladbach til aðgreiningar frá borginni Bergisch Gladbach sem ekki er langt frá. Árið 1960 var forliðnum München breytt í Mönchen, þar sem mikið var ruglast á þessari borg og München í Bæjaralandi.
Aðalknattspyrnulið borgarinnar er Borussia Mönchengladbach sem 5 sinnum hefur orðið þýskur meistari (síðast 1977), þrisvar sinnum bikarmeistari (síðast 1995) og 2 sinnum Evrópumeistari félagsliða (1975 og 1979). Auk þess er hokkíliðið Gladbacher HTC ákaflega vinsælt. Það varð þýskur meistari 2002. Á heimavelli liðsins fór fram HM 2006 í hokkí.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Mönchengladbach, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.