Logi Bergmann Eiðsson (fæddur 2.
desember">2. desember 1966) er íslenskur fjölmiðlamaður og stjórnmálafræðingur.
Logi er fæddur í Reykjavík og eru foreldrar hans Valborg Sveinsdóttir húsmóðir og Eiður Bergmann Helgason fyrrverandi framkvæmdastjóri Þjóðviljans. Logi gekk í hjónaband með Svanhildi Hólm Valsdóttur, þáverandi sjónvarpskonu þann 16. júní 2005. Logi og Svanhildur eiga tvær dætur saman og Logi á einnig fjórar dætur með fyrrverandi konu sinni Ólöfu Dagnýju Óskarsdóttur.
Logi Bergmann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla árið 1987 og námi í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands árið 1994. Hann hóf nám í stjórnmálafræði við HÍ árið 1993 en gerði langt hlé á námi og útskrifaðist tuttugu og fimm árum síðar með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá HÍ árið 2018.
Fjölmiðlaferill Loga hófst er hann var blaðamaður á Þjóðviljanum frá 1986-1988. Hann starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu frá 1988-1991. Logi Bergmann hóf störf sem íþróttafréttamaður á Ríkissjónvarpinu árið 1991 en fór síðan yfir í almennar fréttir. Hann var fréttamaður þar til ársins 2005 og var einnig varafréttastjóri Ríkissjónvarpsins frá 2001-2005. Hann færði sig yfir til Stöðvar 2 árið 2005 og starfaði þar sem fréttamaður og þáttagerðarmaður til ársins 2017. Nokkrum dögum eftir að hann sagði upp störfum á Stöð 2, var tilkynnt að hann hefði verið ráðinn til starfa hjá fjölmiðlasamsteypu Árvakurs og Símans. Fyrirtækið 365 miðlar, sem þá rak Stöð 2 taldi að með því að ganga til liðs við annað fjölmiðlafyrirtæki hefði Logi brotið gegn ráðningarsamningi sínum og krafðist 365 miðlar lögbanns á störf hans hjá Árvakri og Símanum. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu varð við þeirri beiðni og því hóf Logi ekki störf hjá Árvakri fyrr en töluvert síðar en til stóð.
Hann gegndi stöðu spyrils í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, á árunum 1999 - 2005.
Logi hefur sungið lagið Run to the Hills með hljómsveitinni Iron Maiden á tónleikum á Spáni fyrir framan 15.000 áhorfendur.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Logi Bergmann Eiðsson, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.