Eyjafjörður: Fjörður á Norðurlandi-Eystra

Eyjafjörður er fjörður á miðju Norðurlandi.

Hann er einn af lengstu fjörðum Íslands og héraðið umhverfis fjörðinn og inn af honum er næstfjölmennasta hérað landsins. Nafnið er dregið af Hrísey sem liggur á miðjum firðinum.

Eyjafjörður
Eyjafjörður
Eyjafjörður: Fjörður á Norðurlandi-Eystra
Árskógssandur

Staðhættir

Fjörðurinn er langur og mjór, 60 km frá mynni að botni. Mesta breidd hans er 25 km á milli Sigluness og Gjögurtáar í mynni fjarðarins en yfirleitt er fjörðurinn á bilinu 6-10 km breiður. Tveir minni firðir ganga út úr Eyjafirði vestan megin, Ólafsfjörður og Héðinsfjörður.

Fjörðurinn er umkringdur fjöllum á báða vegu, þó nokkuð hærri að vestanverðu í fjallgarði Tröllaskaga. Það er nánast ekkert undirlendi meðfram ströndum í utanverðum firðinum en þegar sunnar dregur breikkar láglendið, þó meira að vestanverðu.

Nokkrir dalir ganga inn frá Eyjafirði. Að vestan eru Svarfaðardalur, Þorvaldsdalur og Hörgárdalur þeirra mestir en að austan Dalsmynni. Stærsti dalurinn sem gengur út frá Eyjafirði er þó sá sem gengur beint inn af firðinum og ber hann einnig nafnið Eyjafjörður (sem á ekki að rugla saman við Eyjafjarðardal). Sá dalur er bæði langur og breiður og hýsir eina þéttbýlustu og grösugustu sveit landsins.

Nokkrar ár renna í Eyjafjörð, þeirra stærstar eru Eyjafjarðará, Fnjóská og Hörgá en einnig Svarfaðardalsá.

Mannlíf

Eyjafjarðarsvæðið er það næst fjölmennasta á Íslandi á eftir höfuðborgarsvæðinu. Árið 2016 var samanlagður mannfjöldi sveitarfélaganna sem liggja að firðinum um 25.000

Langstærsti bær svæðisins er Akureyri en aðrir bæir og þorp eru: Ólafsfjörður, Dalvík, Hrísey, Árskógssandur, Hauganes, Hjalteyri, Hrafnagil, Svalbarðseyri og Grenivík. Grunnatvinnuvegir flestra þessara staða eru sjávarútvegur og landbúnaður en Akureyri er að auki þjónustumiðstöð svæðisins með mörgum mikilvægum stofnunum á borð við sjúkrahús og háskóla.

Eyjafjörður: Fjörður á Norðurlandi-Eystra 
Horft út Eyjafjörðinn frá Súlum, Akureyri sést neðst til hægri á myndinni

Tilvísanir

Tags:

FjörðurHríseyNorðurlandÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Sérsveit ríkislögreglustjóraKarfiVottar JehóvaVÍslenski þjóðbúningurinnEgyptalandFranska byltinginListi yfir skammstafanir í íslenskuZLiðfætluættRóbert WessmanSeyðisfjörðurSvíþjóðFreyrIA Night at the OperaHólar í HjaltadalÍslensk mannanöfn eftir notkun/Einn nafnhafiÍslendingasögurAserbaísjanSjálfstæðisflokkurinnVenesúelaGervigreindEilífðarhyggjaEritreaÍslandsbankiSamheitaorðabókÓákveðið fornafnBlóðbergSankti PétursborgWayback MachinePáll ÓskarJórdaníaÍslamKonungasögurJólaglöggKúariðaAtviksorðLilja (planta)Steven SeagalListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðHernám ÍslandsSóley TómasdóttirSkyrbjúgurFjallagrösRagnar loðbrókSjálfstæðar og ósjálfstæðar sagnirFjölnotendanetleikurMollHreysikötturÚranusMalcolm XÁsgeir TraustiMagnús Kjartansson (tónlistarmaður)Jósef StalínGíneuflóiFjalla-EyvindurJacques DelorsVerg landsframleiðslaSuðurskautslandiðFrumbyggjar AmeríkuHeiðlóaUrriðiSuður-AmeríkaLotukerfiðLandnámabókÁbendingarfornafnStöð 2BlóðsýkingPekingStykkishólmurHvalirLúðaFöstudagurinn langiFlosi ÓlafssonEignarfallsflótti🡆 More