Sjávarútvegur er hugtak sem erfitt er að skilgreina á einn hátt.
Orðið fisheries er oft notað yfir sjávarútveg í enskumælandi löndum og sjávarútvegsfræðingar kalla sig gjarnan fisheries scientists á ensku. Þó á hugtakið fishing industry líklega betur við. Sjávarútvegur snýst ekki bara um fiskveiðar. Hann er í raun allt ferlið frá rannsóknum á umhverfi auðlindarinnar, þ.e. hafinu og allt þar til afurðin er komin á disk neytenda á innlendum eða alþjóðlegum mörkuðum. Aðalmarkmið sjávarútvegs er því ekki að veiða fisk, heldur að selja fiskafurðir.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sjávarútvegur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.