Konungur Ítalíu

Konungur Ítalíu er titill þjóðhöfðingja sem ekki er lengur í notkun frá því Ítalía varð lýðveldi árið 1946.

Núverandi erfingi síðasta konungs Ítalíu, Viktor Emmanúel prins af Napólí, notast við titilinn konunglegur erfðaprins (principe reale ereditario).

Konungur Ítalíu
Fáni konungsríkisins Ítalíu frá 1861 til 1946.

Titillinn hefur verið notaður af mörgum, en enginn konungur Ítalíu réði yfir öllum Appennínaskaganum fyrr en í kjölfar sameiningar Ítalíu árið 1861 eftir að meirihluti kjósenda á Norður-Ítalíu hafði valið að gera landið að konungsríki í stað lýðveldis, líkt og margir sameiningarsinnar (eins og Giuseppe Garibaldi) höfðu barist fyrir. Í reynd var konungsríkið Sardinía þá látið ná yfir alla Ítalíu og konungur Sardiníu varð konungur Ítalíu.

Konungar Ítalíu

Germanskir konungar

Eftir afsögn Rómúlusar Ágústulusar Rómarkeisara árið 476 var Herúllinn Ódóaker útnefndur dux Italiae og tók sér síðar titilinn rex Italiae eða konungur Ítalíu.

Austurgotinn Þjóðríkur mikli sigraði Ódóaker og tók sér titilinn konungur Ítalíu. Eftirmenn hans notuðu titilinn þar til Býsans náði Ítalíu aftur á sitt vald. Síðasti konungur Ítalíu í það skiptið var Teias (d. 552).

Frankakonungar

Þriðji sonur Karlamagnúsar, Pípinn var krýndur konungur Ítalíu af Hadríanusi I páfa, en hann og eftirmenn hans ríktu aðeins á Norður-Ítalíu, en Mið-Ítalía var innan Páfaríkisins.

Frá 888 voru yfirleitt nokkrir sem gerðu tilkall til titilsins, nokkrir þeirra keisarar hins Heilaga rómverska ríkis. Frá 962 til 1806 var titillinn hluti af titlum keisarans.

Napóleonstíminn

Napóleon Bónaparte stofnaði skammlíft Ítalskt konungdæmi á Norður-Ítalíu 1805 og krýndi sjálfan sig konung Ítalíu. Þetta konungsríki lifði til falls Napóleons 1814.

Savojaættin

Konungur Ítalíu 
Skjaldarmerki Savojaættarinnar

Með sameiningu Ítalíu 1861 varð konungur Sardiníukonungi Ítalíu.

Nafn frá til
Viktor Emmanúel 2. Konungur Ítalíu  17. mars 1861 9. janúar 1878
Úmbertó 1. Konungur Ítalíu  9. janúar 1878 29. júlí 1900[1]
Viktor Emmanúel 3. Konungur Ítalíu  29. júlí 1900 9. maí 1946[2]
Úmbertó 2. Konungur Ítalíu  9. maí 1946[3] 12. júní 1946[4]

Endalok titilsins

Í stjórnarskrá lýðveldisins Ítalíu er tekið fram að allir aðalstitlar séu numdir úr gildi. Í sérstökum viðauka er auk þess lagt blátt bann við því að afkomendur síðasta konungs Ítalíu í beinan karllegg stígi fæti á ítalska jörð. Þessi viðauki var fyrst numinn úr gildi 23. október 2002, en afkomendur Úmbertós II hafa ekki gert beint tilkall til titilsins.

Tengt efni

Tags:

Konungur Ítalíu Konungar ÍtalíuKonungur Ítalíu Endalok titilsinsKonungur Ítalíu Tengt efniKonungur Ítalíu1946LýðveldiViktor Emmanúel IIIÍtalía

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

1187Kjarnorkuslysið í TsjernobylBrennivínSkapabarmarSan FranciscoAuður HaraldsGengis KanMarseilleAngkor WatAlsírListi yfir skammstafanir í íslenskuKanadaÓðinnTorfbærÓlafur Gaukur ÞórhallssonNorðurlöndinListi yfir íslensk mannanöfnFHagfræðiGuðmundur Franklín JónssonÍslenskur fjárhundurGæsalappirVatnsaflTenerífeSveitarfélög ÍslandsGuðPaul McCartneyNígeríaFæreyjarListi yfir íslenskar hljómsveitirElly VilhjálmsLénsskipulagAndreas BrehmePáskarKjördæmi ÍslandsBragfræðiJúlíus CaesarVextirAsmaraEnskaSvalbarðiArsenVenusHaagLína langsokkurTölfræðiKreppan miklaLýsingarorðForsíðaDýrið (kvikmynd)Íslenski þjóðbúningurinnÍrlandÍslenska kvótakerfiðManchester CitySálfræðiFrançois WalthéryTíu litlir negrastrákarKróatíaHeyr, himna smiðurSvampur SveinssonAfríkaTeboðið í BostonPortúgalVorTálknafjörður1913FirefoxSkaftáreldarGeorge Patrick Leonard WalkerBroddgölturÍsöldJökulgarðurVera IllugadóttirFranska byltinginAnthony C. GraylingKristbjörg KjeldSamskiptakenningarFinnland🡆 More