Grísk heimspeki er, eins og nafnið gefur til kynna, heimspeki frá Grikklandi eða heimspeki stunduð á grísku.
Venjulega er hugtakið notað til þess að nefna gríska fornaldarheimspeki og þá yfirleitt til aðgreiningar frá rómverskri heimspeki, en grísk heimspeki á sér einnig lengri sögu í Grikklandi.
Heimspeki fornaldar á Vesturlöndum á upphaf sitt í Grikklandi. Þar varð til rík og samfelld heimspekihefð sem Rómverjar þáðu í arf (sjá grein um rómverska heimspeki). Segja má að sú heimspekihefð sem upprunnin er í Grikklandi eigi sér samfellda sögu allt fram okkar samtíma í gegnum rómverska heimspeki, miðaldaheimspeki, heimspeki endurreisnartímans og nýaldarheimspeki á 17. og 18. öld.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Grísk heimspeki, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.