Frances Arnold: Bandarískur efnaverkfræðingur

Frances Hamilton Arnold (25.

júlí 1956) er bandarískur efnaverkfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi. Hún er prófessor í efnaverkfræði, lífverkfræði og lífefnafræði við Tækniháskólann í Kaliforníu. Árið 2018 var Arnold sæmd Nóbelsverðlaununum í efnafræði fyrir rannsóknir sínar á stýrðri þróun til að byggja upp ensím.

Efnaverkfræði
20. og 21. öld
Frances Arnold: Uppvöxtur og menntun, Ferill, Einkahagir
Nafn: Frances Hamilton Arnold
Fædd: 25. júlí 1956 (1956-07-25) (67 ára)

Edgewood, Pennsylvaníu, Bandaríkjunum

Svið: Efnaverkfræði, lífverkfræði, lífefnafræði
Alma mater: Princeton-háskóli (BS)
Kaliforníuháskóli í Berkeley (M.S., PhD)
Helstu
vinnustaðir:
Tækniháskólinn í Kaliforníu
Verðlaun og
nafnbætur:
Frances Arnold: Uppvöxtur og menntun, Ferill, Einkahagir Nóbelsverðlaunin í efnafræði (2018)

Uppvöxtur og menntun

Frances Arnold er dóttir Josephine Inman og kjarneðlisfræðingsins Williams Howard Arnold. Hún er jafnframt sonardóttir herforingjans Williams Howard Arnold eldri. Hún ólst upp í úthverfinu Edgewood við Pittsburgh og hverfunum Shadyside og Squirrel Hill í Pittsburgh. Hún útskrifaðist úr Taylor Allderdice-gagnfræðiskólanum í borginni árið 1974. Sem gagnfræðiskólanemandi ferðaðist Arnold á puttanum til Washington, D.C. til þess að mótmæla Víetnamstríðinu og vann fyrir sér sem gengilbeina á djassklúbbi og sem leigubílstjóri.

Arnold útskrifaðist úr Princeton-háskóla árið 1979 með BS-gráðu í vélaverkfræði og flugvélaverkfræði. Þar hafði hún lagt áherslu á rannsóknir á sólarorku. Auk þess að ljúka skylduáföngum námsbrautar sinnar tók hún áfanga í hagfræði, rússnesku og ítölsku og sá fyrir sér að hún myndi gerast erindreki eða framkvæmdastjóri. Hún velti því fyrir sér að fara í framhaldsnám í alþjóðasamskiptum. Hún tók sér eins árs hlé frá Princeton-háskóla eftir annað árið sitt þar og ferðaðist til Ítalíu til að vinna þar í verksmiðju sem framleiddi hluta í kjarnakljúfa. Að ári loknu sneri hún aftur til Bandaríkjanna til að ljúka námi.

Þegar hún kom aftur til Princeton-háskóla hóf Arnold nám við Orku- og umhverfisrannsóknarstöð skólans – hóp vísindamanna og verkfræðinga sem vinna að þróun sjálfbærrar orku. Þetta átti eftir að vera eitt af meginviðfangsefnum Arnolds síðar á rannsóknarferli hennar.

Eftir útskrift úr Princeton-háskóla árið 1979 vann Arnold sem verkfræðingur í Suður-Kóreu og Brasilíu og við Sólarorkurannsóknarmiðstöð Colorado. Við stofnunina vann hún að hönnun sólarorkustöðva fyrir afskekkta staði og tók þátt í að rita skýrslur um málefnið fyrir Sameinuðu þjóðirnar.

Arnold skráði sig síðar til náms við Kaliforníuháskóla í Berkeley og útskrifaðist þaðan með doktorsgráðu í efnaverkfræði árið 1985. Hún fékk jafnframt mikinn áhuga á lífefnafræði við skólann. Doktorsritgerð hennar fjallaði um aðferðir við sækniskiljun.

Ferill

Eftir að hafa lokið doktorsnámi sínu lauk Arnold nýdoktorsrannsókn í lífeðlisefnafræði við Berkeley-háskóla. Árið 1986 fékk hún vinnu sem gestakennari við Tækniháskólann í Kaliforníu (Caltech). Hún var gerð lektor árið 1986, dósent árið 1992 og prófessor árið 1996. Hún var útnefnd Dick og Barbara Dickinson-prófessor í efnaverkfræði, lífverkfræði og lífefnafræði árið 2000 og hlaut síðan stöðu Linus Pauling-prófessors í sömu greinum árið 2017. Árið 2013 var hún útnefnd framkvæmdastjóri Lífverkfræðistofu Donnu og Benjamins M. Rosen við Caltech.

Arnold sat í vísindanefnd Santa Fe-stofnunarinnar frá 1995-2000. Hún er meðlimur í ráðgjafarnefnd ríkisrannsóknarstofnunarinnar Joint BioEnergy Institute og styrkjasjóðs David og Lucile Packard-stofnunarinnar fyrir vísindi og verkfræði. Auk þess situr hún í ráðgjafarráði forseta Vísinda- og tækniháskóla Abdúlla konungs og í dómnefnd fyrir verkfræðiverðlaun Elísabetar drottningar. Arnold hefur unnið við bandarísku vísindaakademíuna til að hjálpa handritshöfundum í Hollywood að skrifa á réttan hátt um vísindaleg málefni.

Arnold er meðal hugarsmiða á bak við rúmlega 40 einkaleyfi í Bandaríkjunum. Árið 2005 tók hún þátt í stofnun Gevo, Inc., fyrirtækis sem býr til eldsneyti og efnablöndur úr endurnýtanlegum hráefnum. Árið 2013 stofnaði hún ásamt tveimur fyrrum nemendum sínum, Peter Meinhold og Pedro Coelho, fyrirtækið Provivi til að leita að öðrum leiðum en plágueyðum til að vernda akra. Arnold hefur setið í framkvæmdastjórn erfðafræðifyrirtækisins Illumina frá árinu 2016.

Einkahagir

Arnold býr í La Cañada Flintridge í Kaliforníu. Hún var gift efnaverkfræðingnum Jay Bailey, sem lést úr krabbameini árið 2001. Þau áttu son að nafni James Bailey. Arnold var sjálf greind með brjóstakrabbamein árið 2005 og fór í 18 mánaða meðferð fyrir sjúkdómnum.

Arnold giftist stjarneðlisfræðingnum Andrew E. Lange árið 1994 og eignaðist með honum tvo syni, William og Joseph. Lange framdi sjálfsmorð árið 2010 og annar sonur þeirra, William Lange-Arnold, lést af slysförum árið 2016.

Arnold hefur áhuga á ferðalögum, köfun, skíðum, torfæruhjólreiðum og fjallgöngum.

Tilvísanir

Tags:

Frances Arnold Uppvöxtur og menntunFrances Arnold FerillFrances Arnold EinkahagirFrances Arnold TilvísanirFrances ArnoldBandaríkinEfnaverkfræðiEnsímLífefnafræðiNóbelsverðlauninNóbelsverðlaunin í efnafræðiTækniháskólinn í Kaliforníu

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HjartaÍslenski fáninnFranz SchubertMargæsSalka ValkaSýslur ÍslandsKóreustríðiðPóllandLatibærJúgóslavíaHáskóli ÍslandsSifBjarni Benediktsson (f. 1970)ÍslenskaHæstiréttur ÍslandsHelliseyjarslysiðVerg landsframleiðslaFreyjaÁstralíaSauðárkrókurListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaFuglLandsbankinnHaraldur hárfagriGísli Marteinn BaldurssonLeiðtogafundurinn í HöfðaMorð á ÍslandiGrafarholt og ÚlfarsárdalurÚrvalsdeild karla í körfuknattleikSeðlabanki ÍslandsHaförnBotnssúlurMúmínálfarnirMegindlegar rannsóknirGrenivíkSigrún Þuríður GeirsdóttirSverrir StormskerÞorsteinn Már BaldvinssonFeneyjatvíæringurinnSvissÍsraelÓeirðirnar á Austurvelli 1949SkógarþrösturArentKnattspyrnufélagið ValurRagnarökNormaldreifingSigríður Hagalín BjörnsdóttirÍslensk erfðagreining2015Nína Dögg FilippusdóttirMannakornSonja Ýr ÞorbergsdóttirEdda FalakÖrlagasteinninnEnskaEllisifNorræn goðafræðiBrisDóri DNAGeirfuglKári StefánssonNykurTónbilAlaskasýprusBlakBirtíngurGrænmetiÆgishjálmur🡆 More