Alþjóðatengsl, alþjóðasamskipti eða alþjóðastjórnmál felast í stjórnmálalegum, efnahagslegum og félagslegum tengslum milli ríkja.
Formleg samskipti ríkja má rekja til borgríkja Súmer í fornöld. Undir alþjóðatengsl falla alþjóðleg samskipti stjórnareininga eins og fullvalda ríkja, stjórnmálaflokka, alþjóðastofnana og fjölþjóðafyrirtækja og þau heimskerfi sem þessi tengsl skapa.
Rannsóknir á alþjóðatengslum má rekja til gríska sagnaritarans Þúkýdídesar. Alþjóðatengsl eru háskólagrein sem oft er kennd sem undirgrein stjórnmálafræði.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Alþjóðasamskipti, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.