Magnús Scheving: Íslenskur íþróttamaður og leikari

Magnús Örn Eyjólfsson Scheving (10.

nóvember 1964) er íslenskur íþróttamaður, rithöfundur, leikari, og athafnamaður.

Magnús Scheving: Ferill, Latibær, Myndir
Magnús árið 2011.

Hann er aðalhöfundur leikritanna og sjónvarpsþáttanna um Latabæ þar sem hann leikur Íþróttaálfinn. Efninu er beint að börnum og er markmið þess að hvetja til heilbrigðs lífernis.

Ferill

Magnús hóf að æfa þolfimi á níunda áratugnum og vann fyrsta íslandsmótið í þolfimi árið 1995. Árið 1993 varð hann Norðurlandameistari, og Evrópumeistari í tvígang árin 1994 og 1995. Hann var valinn íþróttamaður ársins á Íslandi árið 1994. Magnús er forstjóri, skapari, og meðstofnandi Latabæ Entertainment sem framleiðir bækur, myndbönd, leiki og íþróttavörur sem stuðla eiga að heilbrigðum lífstíl barna.

Árið 2006, fékk Magnús viðurkenningu á Edduverðlaununum fyrir Latabæ.

Latibær

Magnús Scheving: Ferill, Latibær, Myndir 
Magnús í hlutverki Íþróttaálfsins.

Magnús hefur löngum beitt sér fyrir eflingu almenns heilbrigðis og lagt áherslu á hollt mataræði. Magnús skrifaði barnabókina Áfram Latibær árið 1991.

Baltasar Kormákur setti söguna upp sem leikrit og var það í sýningu 1995–1997. Stefán Karl Stefánsson lék svo titilhlutverkið í framhaldsleikritinu Glanni glæpur í Latabæ sem sýnt var 1999.

Bandaríska barnasjónvarpsstöðin Nickelodeon gerði þætti um Latabæ í fjórum þáttaröðum. Þættirnir kölluðust Lazytown og voru sýndir frá 2004–2007 og 2013 og öðluðust heimsfrægð. Magnús lék líka Íþróttaálfinn í þeim þáttum.

Árið 2014 sagði Magnús skilið við Latabæ eftir margra ára velgengni og eftirlét fimleikamanninum Dýra Kristjánssyni að leika Íþróttaálfinn.

Myndir

Magnús lék illmennið í kvikmyndinni The Spy Next Door frá 2010.

Einkalíf

Magnús var giftur Ragnheiði Melsteð. Þau skildu árið 2014. Magnús og Ragnheiður eiga tvö börn en hann á aðra dóttur úr fyrra sambandi.

Tenglar

Magnús Scheving: Ferill, Latibær, Myndir   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Magnús Scheving FerillMagnús Scheving LatibærMagnús Scheving MyndirMagnús Scheving EinkalífMagnús Scheving TenglarMagnús Scheving

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ValurPétur J. Thorsteinsson (sendiherra)Íslenska sauðkindinJapanHafnarfjörðurAriel HenryÍslenskt mannanafnBorðeyriKlóeðlaUngverjalandHringadróttinssagaEvrópaHættir sagna í íslenskuKríaJakobsvegurinnLómagnúpurMatthías JochumssonKnattspyrnufélag AkureyrarNæturvaktinForsetakosningar á Íslandi 1980SkaftáreldarTröllaskagiMöðruvellir (Eyjafjarðarsveit)IKEAHellisheiðarvirkjunGormánuðurMorð á ÍslandiÍslandsbankiViðskiptablaðiðInnflytjendur á ÍslandiVafrakakaElriFæreyjarFiann PaulForsetakosningar á Íslandi 2024Íslenskir stjórnmálaflokkarBergþór PálssonAlmenna persónuverndarreglugerðinAkureyriKúlaSeglskútaBenedikt Kristján Mewesg5c8yEsjaListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaHrafna-Flóki VilgerðarsonKarlakórinn HeklaLeikurFjaðureikUngfrú ÍslandNúmeraplataGaldurc1358Jónas HallgrímssonÍslenski hesturinnTikTokÚrvalsdeild karla í körfuknattleikKartaflaSædýrasafnið í HafnarfirðiSjómannadagurinnBarnavinafélagið SumargjöfKristrún FrostadóttirJohn F. KennedyStefán Karl StefánssonForsetakosningar á Íslandi 1996LandsbankinnKnattspyrnufélag ReykjavíkurMargföldunSeinni heimsstyrjöldinNellikubyltinginÍslenska kvótakerfiðÍslenskaJesúsJóhannes Haukur JóhannessonKörfuknattleikurFylki Bandaríkjanna🡆 More