Barein (arabíska: البحرين al-Baḥrayn), formlega Konungsríkið Barein (arabíska: مملكة البحرين Mamlakat al-Baḥrayn), er eyríki í Persaflóa úti fyrir strönd Sádi-Arabíu í vestri og Katar í suðri.
Barein er lítill eyjaklasi með 51 náttúrulegri og 33 manngerðum eyjum, þar sem stærsta eyjan, Barein, nær yfir 83% af landi ríkisins. Landið tengist Sádi-Arabíu með vegbrú, Fahd-vegtengingunni, og í bígerð er að byggja brú til Katar einnig. Meira en helmingur af 1,5 milljón íbúum landsins eru ekki bareinskir að uppruna. Landið er aðeins 780 ferkílómetrar að stærð og er því þriðja minnsta land Asíu, á eftir Maldíveyjum og Singapúr. Manama er bæði höfuðborg landsins og stærsta borgin.
Konungsríkið Barein | |
مملكة البحرين Mamlakat al Bahrayn | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Baḥraynunā | |
Höfuðborg | Manama |
Opinbert tungumál | arabíska og enska |
Stjórnarfar | Konungsríki
|
Konungur | Hamad bin Isa Al Khalifa |
Krónprins | Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa |
Forsætisráðherra | Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) | 172. sæti 780 km² 0 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar | 149. sæti 1.569.446 1.831/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 78,760 millj. dala (94. sæti) |
• Á mann | 52.129 dalir (19. sæti) |
VÞL (2018) | 0.838 (45. sæti) |
Gjaldmiðill | bareinskur dínar (BHD) |
Tímabelti | UTC+3 |
Þjóðarlén | .bh |
Landsnúmer | +973 |
Talið er að Barein hafi verið miðstöð Dilmunmenningarinnar í fornöld. Síðar varð það hluti af ríkjum Parþa og Sassanída. Barein var lengi frægt fyrir perluveiði. Landið var eitt það fyrsta sem snerist til Íslam árið 628, þegar Múhameð spámaður var enn á lífi. Eftir að hafa verið undir arabískum yfirráðum um langt skeið lögðu Portúgalar það undir sig árið 1521 en þeir voru reknir burt af Abbas mikla sem lagði landið undir veldi Safavída árið 1602. Árið 1783 lagði Bani Utbah-ættbálkurinn eyjuna undir sig og síðan þá hefur Al Khalifa-fjölskyldan ríkt þar. Seint á 19. öld varð landið breskt verndarsvæði. Í kjölfar þess að Bretar drógu sig út úr heimshlutanum seint á 7. áratug 20. aldar lýsti Barein yfir sjálfstæði árið 1971. Landið var formlega lýst konungsríki árið 2002 en var áður emírsdæmi (furstadæmi).
Frá 2011 til 2013 stóð þar uppreisn meirihluta sjíamúslima gegn stjórninni sem hófst eftir Arabíska vorið. Al Khalifa-fjölskyldan hefur verið sökuð um mannréttindabrot og ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum.
Barein var fyrsta landið Arabíumegin við Persaflóa þar sem olíulindir uppgötvuðust árið 1932. Frá síðari hluta 20. aldar hefur efnahagur landsins byggst á fleiri þáttum, einkum banka- og ferðaþjónustu, en eldsneytisútflutningur er enn helsti útflutningsvegur landsins og stendur undir 11% af vergri landsframleiðslu. Helstu vandamál landsins stafa af minnkandi olíu- og vatnsbirgðum og atvinnuleysi ungs fólks. Alþjóðabankinn skilgreinir Barein sem hátekjuland og það situr hátt á vísitölu um þróun lífsgæða. Barein er aðili að Sameinuðu þjóðunum, Samtökum hlutlausra ríkja, Arababandalaginu, Samtökum um íslamska samvinnu og Persaflóasamstarfsráðinu.
Barein er flatlendur og þurr eyjaklasi í Persaflóa. Lág eyðimerkurslétta hækkar örlítið að lágum bakka í miðjunni þar sem hæsti punktur landsins er Reykfjall (Jabal ad Dukan) 134 metrar á hæð. Barein var áður 665 ferkílómetrar að stærð, en vegna endurheimtar lands er það nú 780 ferkílómetrar.
Barein er oft sagt vera eyjaklasi 33 eyja, en vegna endurheimtar lands taldi það 84 eyjar árið 2008. Barein á engin landamæri að öðru landi, en er með 161 km langa strandlengju og gerir tilkall til bæði 12 mílna landhelgi og 24 mílna aðliggjandi lögsögu. Stærstu eyjar eyjaklasans eru Bareineyja, Hawar-eyjar, Muharraq-eyja, Umm an Nasan og Sitra. Loftslag í Barein einkennist af mildum vetrum og heitum, rökum sumrum. Helstu náttúruauðlindir eru miklar olíulindir, jarðgaslindir og fiskimið undan ströndum landsins. Ræktarland er aðeins 2,82% af þurrlendinu.
Fyrsta sveitarfélagið í Barein var Manama sem var stofnað í júlí 1919. Sveitarstjórnarmenn voru kosnir árlega. Sveitarfélagið var sagt vera það fyrsta í Arabaheiminum. Sveitarfélagið bar ábyrgð á hreinsun gatna og leigu húsnæðis. Árið 1929 hóf það vegagerð auk þess að opna markaði og sláturhús. Árið 1958 hóf sveitarfélagið hreinsun vatns. Árið 1960 voru fjögur sveitarfélög í Barein: Manama, Hidd, Al Muharraq og Riffa. Á næstu 30 árum var þessum 4 sveitarfélögum skipt í 12 sveitarfélög eftir því sem bæir eins og Hamad-bær og Isa-bær uxu. Þessum sveitarfélögum var stýrt af sveitarstjórnarráði í Manama og fulltrúar þess voru skipaðir af konungi.
Fyrstu sveitarstjórnarkosningarnar í Barein eftir að landið fékk sjálfstæði 1971, voru haldnar 2002. Þær síðustu voru haldnar 2010. Sveitarfélögin voru:
Kort | Fyrrum sveitarfélög |
---|---|
1. Al Hidd | |
2. Manama | |
3. Vesturhérað (Barein) | |
4. Miðhérað (Barein) | |
5. Norðurhérað (Barein) | |
6. Muharraq | |
7. Rifa og Suðurhérað | |
8. Jidd Haffs | |
9. Hamad-bær (ekki sýndur) | |
10. Isa-bær | |
11. Hawar-eyjar | |
12. Sitra |
Eftir 3. júlí 2002 var Barein skipt í fimm landstjóraumdæmi sem hvert heyrði undir landstjóra. Landstjóraumdæmin voru:
Kort | Fyrrum landstjóraumdæmi |
---|---|
1. Höfuðborgarumdæmi (Barein) | |
2. Miðumdæmi (Barein) | |
3. Muharraq-umdæmi | |
4. Norðurumdæmi (Barein) | |
5. Suðurumdæmi (Barein) |
Miðumdæmið var lagt niður í september 2014 og landsvæðinu skipt milli Norðurumdæmis, Suðurumdæmis og Höfuðborgarumdæmis.
Kort | Núverandi landstjóraumdæmi |
---|---|
1 – Höfuðborgarumdæmi (Barein) | |
2 – Muharraq-umdæmi | |
3 – Norðurumdæmi (Barein) | |
4 – Suðurumdæmi (Barein) |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Barein, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.