66°Norður

66°Norður er íslenskt fyrirtæki sem hannar, framleiðir og selur föt.

Fötin eru sniðin á börn, konur og menn og henta fyrir alla útiveru. Fyrirtækið hefur unnið mörg hönnunarverðlaun fyrir vörur sínar, svo sem Scandinavian Outdoor Awards (SOA).

Sjóklæðagerðin ehf.
66°Norður
Rekstrarform Einkahlutafélag
Slagorð Keeping Iceland warm since 1926
Stofnað 1926 sem Sjóklæðagerð Íslands
Stofnandi Hans Kristjánsson
Staðsetning Garðabæ
Starfsemi Fatagerð
Vefsíða 66north.is

Saga

66°Norður 
Sjómaður í fatnaði frá Sjóklæðagerð Íslands

66°Norður, eða Sjóklæðagerðin eins og fyrirtækið heitir sums staðar, hóf göngu sína árið 1926 á Suðureyri við Súgandafjörð. Upprunalega hét fyrirtækið Sjóklæðagerðin en 66°Norður nafnið kom til vegna þess að Súgandafjörður er nálægt breiddargráðunni 66 gráður norður og þótti það því við hæfi. Hans Kristjánsson, ungur sjómaður á Suðureyri, hóf tilraunir heima hjá sér í Súgandafirði við gerð sjófatnaðar og var kostaður af útgerðarmönnum í nám til Noregs til að læra af sjóklæðagerðum þar í landi. Þegar hann kom aftur heim til Íslands hóf Hans að sníða og framleiða sinn eigin sjófatnað og stofnaði Sjóklæðagerð Íslands. Tilgangur fyrirtækisins var að búa til betri fatnað fyrir sjómenn sem létti þeim verkin og gerði tilveru þeirra örlítið öruggari.

Í dag

Vörulína fyrirtækisins hefur breikkað mikið á undanförnum árum og er nú fatnaðurinn orðinn hversdagsfatnaður margra Íslendinga í þeirra daglega lífi. Frá upphafi hefur félagið starfrækt sínar eigin verksmiðjur og fer stærstur hluti framleiðslunnar í dag fram í verksmiðjum í Lettlandi. Þar starfa um 200 manns (árið 2016) við framleiðslu og pökkun á útivistarfatnaði, sjófatnaði og vinnufatnaði fyrir fjölmargar starfstéttir, allt frá byggingarverkamönnum til lögregluþjóna.

Þjónusta

Fyrirtækið býður upp á ýmsa þjónustu, svo sem sérsaum, merkingar og ýmsar viðgerðir á vörum þess.

Verslanir

Eftirfarandi listi af verslunum 66°Norður hér á landi og erlendis:

Á Íslandi

  • Faxafeni 12
  • Faxafeni 12 - Útsölumarkaður
  • Bankastræti 5
  • Kringlan
  • Smáralind
  • Miðhrauni 11
  • Skipagata 9 (Akureyri)
  • Hafnarstræti 94 (Akureyri)
  • Laugavegur 17-19
  • Keflavíkurflugvöllur

Erlendis

  • Sværtegade 12 - Danmörk
  • Østergade 6 - Danmörk
  • Illum - Østergade 52 - Danmörk

Tilvísanir

Heimildir

Tags:

66°Norður Saga66°Norður Þjónusta66°Norður Verslanir66°Norður Tilvísanir66°Norður Heimildir66°NorðurFyrirtækiFötÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024Fritillaria przewalskiiSkorri Rafn RafnssonGunnar ThoroddsenKatrín MagnússonSiðaskiptinSvampur SveinssonBergþóra SkarphéðinsdóttirRúmeníaEiður Smári GuðjohnsenUnuhúsÍslandÍsafjarðarbærStapiSíminnSeinni heimsstyrjöldinEvrópaFæreyskaDagur jarðarTyggigúmmíÍsbjörnKópavogurKrýsuvíkSamkynhneigðListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaLýsingarhátturÓlafur Karl FinsenNafnháttarmerkiBárðarbungaHundurHáhyrningurÍslenskt mannanafnSamyrkjubúskapurFaðir vorTékklandHernám ÍslandsHómer SimpsonSveitarfélög ÍslandsHlíðarfjallÓmar RagnarssonMarokkóska karlalandsliðið í knattspyrnuSpaceXNoregurAlþýðuflokkurinnListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurKnattspyrnufélagið VíkingurSálfræðileg sérhyggjaBankahrunið á ÍslandiRóbert laufdalMads MikkelsenBerlínEyjafjörðurÍslenski hesturinnForsetakosningar á ÍslandiSlóvenskaVistgataHæstiréttur Íslands23. aprílKúrdistanIndónesíaVeik beygingEigindlegar rannsóknirJarðfræði ÍslandsHéðinn SteingrímssonEgilsstaðirTjaldKommúnismiSauðféTinHeyHættir sagna í íslenskuÍslenskur fjárhundurSteypireyðurKennifall (málfræði)Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnuAlaska🡆 More