Þrettándi viðauki stjórnarskrár Bandaríkjanna (e.
Thirteenth Amendment to the United States Constitution eða Amendment XIII) er stjórnarskrárbreyting sem tók gildi árið 1865 og bannar alfarið þrælahald, og nauðungavinnu nema í þeim tilfellum þar sem glæpamenn eru dæmdir til hegningarvinnu. Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti (1861-1865) hafði frumkvæði að því að innleiða viðaukann, í þeim tilgangi að binda enda á þrælahald í Bandaríkjunum. Viðaukinn var sá fyrsti af þremur viðaukum stjórnarskrárinnar sem kenndir eru við endurbyggingatímabil Bandaríkjanna, sem stóð yfir á árunum eftir bandarísku borgarastyrjöldina (e. Reconstruction Amendments). Hinir tveir viðaukarnir eru þeir fjórtándi og fimmtándi, og tóku þeir allir gildi á árunum 1865-1870.
Viðaukinn er svohljóðandi á ensku:
Hann hefur verið þýddur á íslensku á eftirfarandi hátt:
Þegar stjórnarskrá Bandaríkjanna var skrifuð árið 1787 stóðu yfir miklar deilur á milli Suðurríkjanna annars vegar, og Norðuríkjanna hinsvegar, um mörg málefni og þá sérstaklega þrælahald. Skipulagt þrælahald hafði að mestu verið afnumið í Norðurríkjunum, þar sem efnahagurinn byggðist á alþjóðlegri verslun og iðnvæðingin var að hefjast. En í Suðurríkjunum var þrælahald enn við lýði og þar byggðist efnahagurinn að mestu á hefðbundnum landbúnaði. Þrælahald var sérstaklega mikilvægt fyrir þann víðtæka plantekrubúskap sem þar var rekinn. Þegar landsfeður Bandaríkjanna skrifuðu stjórnarskrána var ekki tekið sérstaklega á þessu vandamáli, heldur var deilunni einfaldlega frestað til framtíðarinnar.
Landsfeðrum Bandaríkjanna tókst að vissu leyti að miðla málum þegar þeir skrifuðu stjórnarskrána, og koma til móts við yfirstéttina í Suðurríkjunum til þess að stefna ekki hinu nýja ríkjasambandi Norður-Ameríku í uppnám, með því sem kallað hefur verið á ensku „The Three-Fifths Compromise“. Þetta var málamiðlun sem birtist í 2. hluta 1. greinar stjórnarskrárinnar um löggjafavaldið, sem sagði að telja ætti þræla meðal íbúafjölda þegar meta átti hversu marga fulltrúa hvert fylki átta að hafa í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, en þó var hver þræll metinn sem þrír-fimmti hluti venjulegs (frjáls) manns. Þetta ákvæði stjórnarskrárinnar hefur verið kallað „The Three-Fifths Clause,“ og er svohljóðandi á íslensku:
Bandaríkjaþing lagði ekki bann við þrælasölu fyrr en árið 1808, en þrælahald hélt áfram óáreitt í Suðurríkjunum.
Deilan um þrælahald gerjaðist eftir því sem leið á 19. öldina og varð síðar ein af höfuðorsökum bandarísku borgarastyrjaldarinnar, sem blossaði upp á milli Suðurríkjanna og Norðurríkjanna á árunum 1861-1865. Abraham Lincoln hafði verið kosinn forseti árið 1861 fyrir Repúblikanaflokkinn og eitt af helstu stefnumálum hans var að afnema þrælahald. Í miðju borgarastríðinu, árið 1863, veitti Lincoln öllum þrælum Bandaríkjanna frelsi með frelsisveitingunni svokölluðu (e. Emancipation Proclamation). Um það bil þegar Norðurríkin voru að fara með sigur af hólmi, var þrettándi viðaukinn samþykktur af Bandaríkjaþingi þann 31. janúar 1865, og tók síðan gildi 6. desember. Endurbyggingatímabil Bandaríkjanna fylgdi þar á eftir, en á árunum 1865-1877 voru Suðurríkin hernumin af alríkinu sem beitti sér einnig fyrir viðamikilli uppbyggingu á innviðum þeirra, m.a. til að koma til móts við afnám þrælahaldsins.
Með gildistöku þrettánda viðaukans féll hið áðurnefnda „Three-Fifths Clause“ ákvæði stjórnarskrárinnar eiginlega úr gildi þar sem allir íbúar Bandaríkjanna voru nú frjálsir að nafninu til. Kosningaákvæði fjórtánda viðaukans sem tók gildi árið 1868 leysti það af hólmi, en samkvæmt því eru allir menn taldir jafnt þegar meta á fjölda fulltrúa fylkis á Bandaríkjaþingi út frá íbúatölu.
Félagsleg arfleifð þrælahaldsins varði allt fram á 7. áratug 20. aldar, þar sem fylki Suðurríkjanna ráku lögbundna aðskilnaðarstefnu og mismunuðu blökkufólki á grundvelli litarháttar þeirra, þangað til að hæstiréttur Bandaríkjanna og alríkisstjórnin gripu inn í á tímum réttindabyltingarinnar.
Ólíkt hinum tveimur viðaukunum, sem kenndir eru við endurbyggingatímabil Bandaríkjanna, hefur þrettándi viðaukinn verið óumdeildur síðan hann tók gildi og nú á dögum er sjaldan vitnað til hans af dómstólum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Þrettándi viðauki stjórnarskrár Bandaríkjanna, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.