Hatari: Íslensk hljómsveit

Hatari er íslensk hljómsveit (eða margmiðlunarverkefni) sem var stofnuð árið 2015.

Sveitin flytur raftónlist/iðnaðarteknó, með ádeilutexta og líflega sviðsframkomu með BDSM-ívafi. Fyrst kom sveitin saman á Iceland Airwaves árið 2016. Hatari var valin besta tónleikahljómsveit ársins 2017 af tímaritinu Reykjavík Grapevine.

Hatari
Hatari í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2019
Upplýsingar
UppruniReykjavík, Ísland
Ár2015–í dag
Stefnur
ÚtgefandiSvikamylla ehf.
Meðlimir
  • Klemens Hannigan
  • Einar Stefánsson
  • Davíð Katrínarson
Fyrri meðlimir
  • Matthías Haraldsson
Vefsíðahatari.is

Hugðarefni sveitarinnar eru að eigin sögn: Dauðinn, umbylting á samfélagi manna, tilgerðin sem felst í mannlegri tilveru, neyslusamfélagið og heimsendir.

Saga

Upphaf

Einar Stefánsson sem hafði lært trommuleik kynntist Klemens Hannigan í menntaskóla í Belgíu. Þeir fóru að leika sér í upptökuveri þar. Það varð grunnurinn að því sem varð indí-hljómsveitin Kjurr sem keppti í Músíktilraunum 2013. Matthías Tryggvason er frændi Klemens og hófu þeir síðar að semja raftónlist. Það varð að Hatara. Árið 2016 spilaði sveitin á tónleikahátíðum eins og Eistnaflug, LungA, Norðanpaunk og Iceland Airwaves. Stuttskífan Svikamylla kom út árið eftir og gerði sveitin myndbönd við nokkur laga á plötunni.

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva

Hatari: Saga, Meðlimir, Útgefið efni 
Söngvakeppnin 2019.

Árið 2019 vann Hatari forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á Íslandi með lagið „Hatrið mun sigra“. Hljómsveitin hélt út til Ísraels og vakti þar talsverða athygli. Þrír dansarar komu fram með hópnum. Hatara voru settar línur af framkvæmdastjóra Söngvakeppninnar að ganga ekki of langt í pólitískum yfirlýsingum.

Hatari endaði í 10. sæti í keppninni. Þegar stigagjöf áhorfenda var gefin dró hljómsveitin upp borða með palestínska fánanum. Í kjölfarið gaf sveitin út lag og myndband með samkynhneigðum palestínumanni, Bashar Murad.

Neyslutrans

Í janúar 2020 gaf sveitin út sína fyrstu breiðskífu, Neyslutrans og myndband fyrir smáskífuna „Engin miskunn“. Sveitin hélt útgáfutónleika í Austurbæ og til stóð að halda á Evróputúrinn Europe Will Crumble með Cyber sem upphitunarhljómsveit. Það frestaðist vegna Covid.

Breytingar

Í júlí 2022 hefur Íris Tanja fyllt skarð fyrir Ástrós sem tók ekki þátt í nýlegum tónleikum vegna meðgöngu, en Andrean tók ekki þátt í tónleikaferðinni af persónulegum ástæðum.

Í mars 2023 ákvað Mattías Haraldsson að yfirgefa hljómsveitina og einbeita sér að föðurhlutverkinu. Næsta mánuð gaf Klemens Hannigan út smáskífu sína „Never Loved Someone So Much“.

Síðar á árinu tók Davíð Þór Katrínarson við sem söngvari.

Meðlimir

  • Klemens Hannigan
  • Einar Stefánsson
  • Davíð Þór Katrínarson

Dansarar

  • Sólbjört Sigurðardóttir
  • Sigurður Andrean Sigurgeirsson
  • Ástrós Guðjónsdóttir
  • Ronja Mogensen
  • Birta Ásmundsdóttir

Fyrrum meðlimir

  • Mattías Haraldsson

Ferðadansarar

  • Íris Tanja Flygenring

Útgefið efni

Breiðskífur

  • Neyslutrans (2020)

Stuttskífur

  • Neysluvara (2017)

Smáskífur

  • „Ódýr“ (2017)
  • „X“ (2017)
  • „Spillingardans“ (2019)
  • Hatrið mun sigra“ (2019)
  • „Klefi / Samed“ (2019)
  • „Klámstrákur“ (2019)
  • „Engin miskunn“ (2020)
  • „Dansið eða deyið“ (2022)

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Hatari SagaHatari MeðlimirHatari Útgefið efniHatari TilvísanirHatari TenglarHatariIceland AirwavesRaftónlistReykjavík GrapevineTeknó

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SagnmyndirÍslenska stafrófiðSigmundur Davíð GunnlaugssonSamveldiðDómkirkjan í ReykjavíkH.C. AndersenForsetningarliðurÞunglyndislyfFritillaria przewalskiiSkriðjökullNürnberg-réttarhöldinÍslandsbankiGarðar SvavarssonHafþór Júlíus BjörnssonSjómannadagurinnDiskurListi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög á ÍslandiBorgarahreyfinginMúlaþingGreinirPáll ÓskarSpánnLjósbrotBakkavörSkákSvartfjallalandHeiðniOMX Helsinki 25SagnbeygingPanamaskjölinStari (fugl)Listi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurIndianaVilhjálmur Vilhjálmsson (söngvari)Truman CapoteGoogle TranslateKreppan miklaHelsinkiKennimyndAkrafjallMiðmyndListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðMinniBjörn SkifsAgnes MagnúsdóttirÍrska lýðveldiðSkynfæriHöfuðbókJöklar á ÍslandiÓnæmiskerfiÁfengisbannMyndmálForsíðaKváradagurHandboltiEfnafræðiÞjórsáÁhrifssögnNorræna húsiðStella í orlofiSkúli MagnússonVottar JehóvaVoyager 1Jón Páll SigmarssonPatreksfjörðurAfturbeygt fornafnClapham Rovers F.C.Sigrún ÞorsteinsdóttirAustur-ÞýskalandVatnsdeigBerlínarmúrinnJómsvíkinga sagaÍsland í seinni heimsstyrjöldinniHeimspekiArnaldur IndriðasonSýslur ÍslandsLettneska🡆 More