Óskháttur (optativus) er háttur sagna sem lætur í ljós von, ósk eða þrá en hann var aðallega notaður í forngrísku.
Hátturinn er til staðar í forn-latínu (250-90 f.Kr.) en horfinn í klassískri latínu (90 f.Kr.-14 e.Kr.). Hann er til staðar í forngrísku en fyrir löngu horfinn í nútíma grísku. Hátturinn er til staðar í sanskrít. Líklegast hefur hátturinn fundist í frumindóevrópsku og smám saman fallið brott.
Íslenskan notar aðallega viðtengingarháttinn til að koma á framfæri sömu merkingu og óskhátturinn gerir í öðrum tungumálum:
En stundum er sérstakur óskháttur fyrir sagnir í íslensku, þá má helst nefna óskháttinn veri af sögninni að vera, en venjulegur viðtengingarháttur sagnarinnar að vera er sé.
Óskhátturinn er horfinn úr notkun í finnsku og kemur aðallega fram í skáldskap. Hann er notaður eins og boðhátturinn og gefur til kynna kurteisa beiðni með viðskeytunum -os og -ös
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Óskháttur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.