Forngríska er það tímabil í grískri málsögu sem samsvarar klassískri fornöld.
Tímabilinu má skipta gróflega í fjögur smærri tímabil: mýkenskan tíma, snemmgrískan tíma, klassískan tíma og síðklassískan tíma eða síðfornöld.
Forngríska gríska | ||
---|---|---|
Málsvæði | Útdautt, breyttist í nýgrísku | |
Heimshluti | Við austanvert Miðjarðarhaf | |
Fjöldi málhafa | útdautt | |
Ætt | Indóevrópsk Gríska Forngríska | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-2 | grc | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Gríska er indóevrópskt tungumál
Gríska var farin að greinast í ólíkar mállýskur áður en grískumælandi hópar fólks settust fyrst að í Grikklandi en þó ekki að fullu fyrr en eftir landnámið.
Venjulega eru mállýskur snemmgríska og klassíska tímans flokkaðar í fjóra eða fimm mállýskuhópa:
Arkadísku-kýpversku mállýskurnar virðast vera skyldastar mýkenískri grísku, sem er elsta skráða málstig grískunnar, talað á meginlandi Grikklands og á Krít um 16.-11. öld f.Kr.; sennilega eru arkadísku-kýpversku mállýskurnar komnar af mýkensku mállýskunni. Norðvestur-grísku mállýskurnar eða dórísku mállýskurnar eru mest frábrugðnar öllum hinum. Deilt er um tengsl milli æólísku og attísku-jónísku mállýskanna á elsta stigi þeirra.
Umtalsverð áhrif mállýskanna hver á aðra gera að verkum að erfitt er að vita með vissu hvernig tengslum er háttað á milli þeirra.
Eftir landvinninga Alexanders mikla á 4. öld f.Kr. varð til ný stöðluð mállýska sem er nefnd koine eða samgríska mállýskan, sem var að mestu leyti byggð á attísku en í afar einfölduðu formi og undir áhrifum frá ýmsum öðrum mállýskum.
Forngrískar bókmenntir voru einungis skrifaðar á nokkrum mállýskum. Elstu bókmenntir Grikkja eru Hómerskviður en þær voru samdar á tilbúinni mállýsku, sem er oftast nefnd „hómerísk“ gríska og er blanda af jónískri grísku og (í minna mæli) æólískri grísku auk nokkurra skáldlegra séreinkenna. Grískur kveðskapur var áfram saminn á æólísku (m.a. lesbísku) og jónísku, og síðar á attísku (harmleikir) en kórljóð voru þó ætíð höfð á dórísku. Bókmenntir á óbundnu máli voru samdar á jónísku og attísku. Sumir gamanleikir endurspegla aðrar mállýskur.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Forngríska, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.