Boðháttur: Háttur sagna í tungumálum

Boðháttur (skammstafað sem bh.) er einn af mörgum háttum sagna sem gefur til kynna skipun, bann eða boð.

Í íslensku

Í íslensku er boðhátturinn alltaf í annarri persónu og stendur alltaf fremst í setningu. Tvær leiðir eru til að mynda boðhátt í íslensku: stýfður boðháttur og viðskeyttur boðháttur.

Stýfður boðháttur

Fyrsta leiðin er að finna stofn sagnorða (sem er gert með því að taka nafnháttinn (að hoppa, að elska) og fjarlægja endinguna -a nema þetta sé veik sögn sem endar á -aði í þátíð eins og skrifa) og kallast þetta stýfður boðháttur og er hann í annarri persónu eintölu.

Dæmi

  • Tak sæng þína og gakk!
  • Les þú þessar bækur drengur!
  • Vinn núna verk þín!
  • Hlæ þú ekki að mér stúlka!

Viðskeyttur boðháttur

Viðskeyttur boðháttur er þegar fornafni (þú eða þið) er skeytt aftan á stofn sagnar og tekur breytingum í samræmi við grannhljóð. Boðháttur annarrar persónu fleirtölu hefur sama form og framsöguháttur nútíðar. Persónufornafninu þið er ýmist sleppt eða haft á eftir boðhættinum.

Dæmi: Farið (þið) út! (Samanber „Þið farið út“ þar sem sögnin er í framsöguhætti.)

Hægt er að mynda boðhátt af sögninni að vinna (stýfður vinn, viðskeyttur fleirtölu vinnið) en hann er sjaldan notaður.

Dæmi

  • elska (stýfður) + þið (fornafn) → elsk
      Elskið friðinn börnin góð.
  • flyt (stýfður) + þú (fornafn) → flyttu
      Flyttu allt draslið út.
  • lem (stýfður) + þú (fornafn) → lemdu
      Lemdu ekki bróður þinn Elsa.
  • keyr (stýfður) + þú (fornafn) → keyrðu
      Keyrðu mig út í búð.

Boðháttur í öðrum tungumálum

Í ensku

Í ensku hafa boðháttur („Jump!“ (hoppaðu)) og nafnháttur (to jump (að hoppa)) sama form. Dæmi:

  • „Paul, do your homework now!“ (enska)
      „Páll, sinntu heimanáminu þínu núna!“ (íslenska)
  • Go to Stella's place and get some sugar.“ (enska)
      Farðu heim til Stellu og náðu í sykur.“ (íslenska)

Boðháttur fyrstu persónu fleirtölu (us, „við“) er gefinn til kynna með orðasambandinu let's (bókstaflega lof okkur en samsvarar frekar við skulum). Dæmi:

  • Let's go.“ sem er stytting á „Let us go.“ (enska)
      Förum.“ (íslenska)

Í latínu

Í latínu er boðháttur notaður. Dæmi:

  • Festina! Cibus defrigescet.“
      íslensku: Flýttu þér. Maturinn mun kólna.)
  • Cave canem!“
  • Vade retro me!“
      íslensku: Farðu/Vík [burt] frá mér!)

Þegar boðháttur í latínu er settur í fleirtölu bætist oftast -te við boðháttinn í fleirtölu.

  • I adverso flumine.“
      íslensku: Gakktu [á] móti strauminum.)
  • Ite adverso flumine.“
      íslensku: Gangið [á] móti strauminum.)
  • Plaudite, amici, comedia finita est.“
      íslensku: Klappið, vinir, því gamanleiknum er lokið.)

Heimildir

Tenglar

Boðháttur: Í íslensku, Boðháttur í öðrum tungumálum, Heimildir   Þessi málfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Boðháttur Í íslenskuBoðháttur í öðrum tungumálumBoðháttur HeimildirBoðháttur TenglarBoðhátturHættir sagnaListi yfir skammstafanir í íslensku

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

JansenismiKvennafrídagurinnTinEiffelturninnForsetakosningar á Íslandi 2020SkuldabréfKommúnismiFrosinnTyrkjarániðAusturríkiRisaeðlurMaríuhöfnJakobsvegurinnFranz LisztGuðrún BjörnsdóttirKalínRóteindAnnað ráðuneyti Bjarna BenediktssonarBjarni Benediktsson (f. 1970)LjóðstafirHTMLIðnbyltinginKróatíaPurpuriFlateyjardalurStefán MániFimleikafélag HafnarfjarðarÍsafjörðurVetniEimreiðarhópurinnMyglaHaffræðiLinuxParísHelgi BjörnssonJóhann G. JóhannssonJósef StalínSúrefnismettunarmælingBikarkeppni karla í knattspyrnuGeithálsLögreglan á ÍslandiHarpa (mánuður)Hernám ÍslandsGunnar Helgi KristinssonBaldur ÞórhallssonHamasEfnafræðiAkureyriRaunvextirLofsöngurHjaltlandseyjarAustur-EvrópaJarðskjálftar á ÍslandiForsetakosningar á ÍslandiSkörungurPersónufornafnTáknHvalfjarðargöngValurBerlínarmúrinnVíetnamstríðiðFacebookÍslensk krónaÓlafur Karl FinsenHamskiptinVigdís FinnbogadóttirSkákBríet HéðinsdóttirLaxdæla sagaLeviathanSjálfstæðisflokkurinnHermann HreiðarssonHækaListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Vísir (dagblað)AkranesEigindlegar rannsóknirRóbert WessmanEyjafjallajökull🡆 More