Veik beyging (skammstafað sem v.b.) er hugtak í málfræði.
Gísli Jónsson, íslenskufræðingur, útskýrið veikar sagnir þannig:
Veikar eru þær sagnir kallaðar sem eru fleirkvæðar í þátíð. Þær greinast í fjóra flokka. Í hinum fyrsta er þær sem enda á -a í nútíð og -aði í þátíð. Dæmi: kalla, flokka, svara. Í öðrum flokki er það einkenni skýrast, að nútíð eintölu er endingarlaus, nafnhátturinn endar á -ja, og þetta j í endingunni hefur valdið hljóðvarpi. Þess hljóðvarps gætir þá ekki í þátíð, þar sem ekkert var j-ið. Dæmi: gleðja, flytja, æja (áði, áð). [...] Í þriðja flokki veikra sagna endar nútíðin á -i og hljóðvarps gætir í kennimyndunum. Dæmi: dæma, sbr. dómur, hnýta, sbr. hnútur og eyða, sbr. auður. Fleiri teljast að vísu til þessa flokks en þær sem falla að öllu undir lýsinguna hér að framan. Þá er að lokum fjórði flokkurinn (fáar sagnir), og þar endar nútíðin einnig á -i, en hljóðvarps verður ekki vart í kennimyndunum né nútíð, því að það -i sem nútíðin endar á, var orðið til úr e og olli því ekki hljóðvarpi. Dæmi af fjórða flokki eru duga, horfa, brosa og hafa... | ||
— Gísli Jónsson, íslenskufræðingur |
Sagnorð hafa ýmist veika eða sterka beygingu. Veikar sagnir (skammstafað sem v.s.) hafa tannhljóðsviðskeyti sem endingu (-aði, -ði, -di eða -ti) í þátíð eintölu 1. persónu (t.d. ég elskaði, ég sagði, ég faldi, ég atti). Flest sagnorð í íslensku hafa veika beygingu:
á meðan sterkar sagnir eru endingarlausar í þátíð 1. persónu eintölu:
Kennimyndir veikra sagna er eftirfarandi:
Fyrsta kennimynd | Önnur kennimynd | Þriðja kennimynd |
---|---|---|
nafnháttur | fyrsta persóna eintala þátíð framsöguháttur | lýsingarháttur þátíðar |
að borða | ég borðaði | ég hef borðað |
að elska | ég elskaði | ég hef elskað |
Lýsingarorð sem er veikbeygt endar á sérhljóði í öllum föllum, bæði í eintölu og fleirtölu og standa oftast með nafnorði með ákveðnum greini. Hins vegar hafa lýsingarorð sem standa með nafnorðum án greinis oftast sterka beygingu.:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Veik beyging, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.