Аndrej Sergejevítsj Arshavín (rússneska: Андре́й Серге́евич Арша́вин; f.
29. maí 1981 í Leníngrad) er rússneskur knattspyrnumaður hjá Arsenal FC. Hann býr yfir mikilli knatttækni og er oft kallaður „hinn rússneski Pelé“. Hann sló í gegn með rússneska landsliðinu á EM 2009 þegar hann skoraði eitt mark gegn Hollandi og lagði upp tvö í 8-liða úrslitum. Hann byrjaði að spila með rússneska landsliðinu árið 2002 og hefur leikið 61 landsleiki og hefur skorað 16 mörk. Hann spilaði með Zenit Sankti Pétursborg frá árinu 2000 til 2009 áður en hann var seldur á 15 milljónir punda í janúar 2009 til Arsenal og gerði hann þriggja og hálfs árs samning. Hann getur spilað sem kantmaður, sókndjarfur miðjumaður eða annar framherji. Hann spilar í treyju númer 23 og er dýrasti leikmaður í sögu Arsenal.
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Аndrei Arsavin (AA) | |
Fæðingardagur | 29. maí 1981 | |
Fæðingarstaður | Leníngrad, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Sankti Pétursborg, Rússlandi) | |
Hæð | 1,72 m | |
Leikstaða | Annar framherji, kantur, sókndjarfur miðjumaður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Arsenal | |
Númer | 23 | |
Yngriflokkaferill | ||
Zenit Sankti Pétursborg | ||
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2000-2009 | Zenit Sankti Pétursborg | 77 (22) |
2009- | Arsenal | () |
Landsliðsferill2 | ||
2002- | Rússland | 61 (16) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Аndrej Arshavín, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.