Thomas Edward Lawrence (16.
ágúst 1888 – 19. maí 1935) var breskur fornleifafræðingur, hermaður, erindreki og rithöfundur. Hann er best þekktur fyrir aðkomu sína í hernaðaraðgerðum Breta í Sínaí og Palestínu og uppreisn Araba gegn Tyrkjaveldi í fyrri heimsstyrjöldinni. Hann varð frægur á heimsvísu undir gælunafninu Arabíu-Lawrence vegna hernaðaraðgerða sinna og lifandi frásagna hans af þeim, sérstaklega eftir að kvikmynd var gerð um líf hans árið 1962 með Peter O'Toole í aðalhlutverki.
Lawrence fæddist utan hjónabands í Tremadog, Wales árið 1888. Foreldrar hans voru Thomas Chapman, ensk-írskur aðalsmaður frá Westmeath, og Sarah Jonner, skosk yfirþerna. Chapman hafði skilið óformlega við konu sína og fjölskyldu í Írlandi til að búa með Junner og tóku þau saman upp nafnið Lawrence. Árið 1896 fluttu hjónin til Oxford ásamt syni sínum þar sem hann gekk í háskóla og nam sagnfræði á árunum 1907–1910. Á árunum 1910 til 1914 vann Lawrence sem fornleifafræðingur, aðallega í Carchemish þar sem nú er Sýrland.
Fljótlega eftir byrjun fyrri heimsstyrjaldarinnar bauð Lawrence sig fram í breska herinn og var staðsettur í Egyptalandi. Árið 1916 var hann sendur til Arabíu til að safna upplýsingum og blandaðist fljótt inn í Arabauppreisnina sem milliliður breska hersins og Arabanna. Lawrence vann náið með byltingarleiðtoganum Faisal emír og tók þátt í og leiddi ýmsar herferðir gegn her Tyrkjaveldisins. Herferðunum lauk með hertöku á Damaskus í október 1918.
Eftir stríðið fékk Lawrence starf hjá utanríkisráðuneytinu og vann bæði með bresku ríkisstjórnini og með Faisal. Árið 1922 dró hann sig úr sviðsljósinu og gegndi herþjónustu, aðallega í lofthernum en einnig í hernum til stutts tíma. Á þessum árum skrifaði hann og birti sitt þekktasta verk, Sjö súlur viskunnar (Seven Pillars of Wisdom), þar sem hann segir frá þátttöku sinni í Arabauppreisninni. Hann þýddi einnig ýmsar bækur á ensku og skrifaði bókina The Mint, sem fjallar um störf hans í breska flughernum. Einnig var Lawrence í sambandi við ýmsa fræga listamenn, rithöfunda og stjórnmálamenn og átti þátt í þróun vélknúinna björgunarbáta.
Lawrence lést eftir slys á vélhjóli árið 1935.
Ímynd Lawrence byggðist að miklu leyti á skrifum bandaríska fréttamannsins Lowell Thomas og á Sjö súlum viskunnar, en margir sagnfræðingar telja að Lawrence hafi farið frjálslega með staðreyndir við rit þeirrar bókar.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article T. E. Lawrence, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.