Svörtu Hlébarðarnir

Svörtu hlébarðarnir (e: Black Panther Party (BPP), upphaflega Black Panther Party for Self-Defense) voru samtök sem voru stofnuð 15.

október árið 1966 í Oakland, Kaliforníu. Stofnendur samtakanna voru Bobby Seale og Huey P. Newton. Hugmyndafræði samtakanna og baráttuaðferðir voru sóttar til Black Power hreyfingarinnar, hugsuða og aðgerðarsinna á borð við Malcolm X og Stokely Charmichael. Svortu hlébarðarnir voru ein mikilvægasta hreyfingin sem spratt úr hinu Nýja vinstri í Bandaríkjunum á sjöunda og áttunda áratugnum.

Svörtu Hlébarðarnir
Vopnaðir meðlimir Svörtu hlébarðanna á mótmælasamkomu.

Upphaflegur tilgangur samtakanna var að vakta hverfi blökkumanna til þess að vernda þá gegn lögregluofbeldi í Oakland. Samtökin þróuðust hins vegar í marxískan byltingarhóp og börðust fyrir réttindum allra minnihlutahópa Bandaríkjanna. Samtökin dreifðust síðar til annarra landa, þar á meðal til Bretlands og Alsír. Ágreiningur á milli Huey P. Newton og Eldridge Cleaver, "upplýsingaráðherra" samtakanna (e. Minister of Information) BPP, um stjórnskipulag samtakanna leiddi til skiptingu meðlima BPP í tvær fylkingar. Í kjölfar klofningsins fór að halla undan fæti samtakanna og liðu þau formlega undir lok árið 1982.

Saga

Bandaríska alríkislögreglan gegn BPP

Árið 1969 lýsti J. Edgar Hoover, yfirmaður Bandarísku alríkislögreglunnar, BPP sem stærstu ógninni sem stafaði að þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Á næstu árum voru samtökin undir stöðugu eftirliti alríkislögreglunnar. Þetta eftirlit fór fram í gegnum COINTELPRO (dregið af skammstöfun fyrir Counter Intelligence Program) aðgerðina sem beindist að ýmsum hópum mótmælenda og aðgerðarsinna. Aðgerðin fól í sér eftirliti og njósnum, en einnig sálfræðilegum hernaði flugumanna sem dreifðu ósætti og úlfúð í röðum róttæklinga, t.d. með því að falsa bréf og skjöl.

Svörtu hlébarðarnir voru eitt helsta skotmark COINTELPRO aðgerðarinnar. Meðal annars voru varaformaður BPP, Fred Hampton, og lífvörður hans voru drepnir í húsleit lögreglu á heimili Hampton 4 desember 1969. Húsleitin var hluti af aðgerð alríkislögreglunnar. Sjálfstæð rannsókn á atburðunum sýndi að lögreglan hafði hleypt af 80 skotum meðan Hampton eða lífvörður hans höfðu aðeins hleypt af einu skoti. Atburðinum var því lýst sem lögregluaftöku án dóms og laga.

Tilvísanir

Tags:

1966KaliforníaMalcolm XOaklandOktóberStokely Carmichael

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

MáfarBikarkeppni karla í knattspyrnuPétur Einarsson (f. 1940)Karlsbrúin (Prag)RaufarhöfnSandra BullockÖskjuhlíðLatibærJeff Who?ÓlympíuleikarnirFlámæliKristján EldjárnEddukvæðiÍslendingasögurAlþingiskosningar 2016Gunnar HámundarsonElísabet JökulsdóttirVerðbréfWikipediaListi yfir íslensk kvikmyndahúsInnrás Rússa í Úkraínu 2022–JafndægurSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirÞjóðleikhúsiðMaríuerlaFuglafjörðurJörundur hundadagakonungurRagnhildur GísladóttirSagnorðFermingLofsöngurLitla hryllingsbúðin (söngleikur)Vigdís FinnbogadóttirMoskvufylkiSýslur ÍslandsAlþingiÚlfarsfellg5c8yÁrnessýslaPragVikivakiKarlakórinn HeklaBretlandTómas A. TómassonJohn F. KennedyJón Sigurðsson (forseti)SólmánuðurReykjanesbærJohannes VermeerPortúgalHellisheiðarvirkjunGóaMöðruvellir (Eyjafjarðarsveit)Listi yfir tinda á Íslandi eftir hæðLaxMosfellsbærDavíð OddssonForsetakosningar á Íslandi 1980Friðrik DórBríet HéðinsdóttirRagnar JónassonUngfrú ÍslandSmáralindEigindlegar rannsóknirMelar (Melasveit)Sauðanes (N-Þingeyjarsýslu)Ásgeir ÁsgeirssonFlateyriLánasjóður íslenskra námsmannaSelfossJakobsstigarHandknattleiksfélag KópavogsHrafna-Flóki VilgerðarsonHallgrímur PéturssonFramsóknarflokkurinnGaldurWyoming🡆 More