Shansi: Hérað í Kína

Shansi (eða Shanxi) (kínverska: 山西; rómönskun: Shānxī) er landlukt hérað í Norður- Kína.

Landslag héraðsins einkennist af hásléttu sem afmarkast að hluta af fjallgarði. Nafnið Shansi sem þýðir "vestur af fjöllunum" vísar til staðsetningar héraðsins vestur af Taihang-fjöllum. Nokkuð rétthyrnt að lögun, afmarkast Shansi af héruðunum Hebei í austri, Henan í suðri og suðaustri, Shaanxi í vestri og af sjálfstjórnarsvæðinu Innri-Mongólíu í norðri. Héraðið er um 157.100 ferkílómetrar.

Landakort sem sýnir legu Shansi héraðs í Norður-Kína.
Kort af legu Shansi héraðs í Norður-Kína.

Höfuðborgin og stærsta borg héraðsins er Taiyuan, sem er staðsett í miðju þess, en næst fjölmennustu borgirnar í héraðinu eru Changzhi og Datong. Árið 2010 var íbúafjöldi Shansi um 36 milljónir.

Shansi er sem gátt að frjósömum sléttum Hebei og Henan. Frá fornu fari hefur það einnig þjónað sem varðbelti milli Kína og mongólsku og mið-asísku gresjanna. Héraðið var mikilvæg leið fyrir her- og viðskiptaleiðangra, varð héraðið ein helsta leiðin fyrir inngöngu búddisma til Kína frá Indlandi.

Menning Shansi byggir að mestu á þjóðarmenningu Han meirihlutans, sem er yfir 99 prósent íbúa. Héraðið er þekkt fyrir að hafa mikinn fjölda sögulegra bygginga sem er sá mesti meðal allra kínverskra héraða. Þar eru yfir 70 prósent þeirra bygginga í Kína sem byggðar voru á eða fyrir valdatíma Song ættarveldisins.

Shansi er leiðandi í framleiðandi kols í Kína og áætlað er að um þriðjungur kola í jörðu í Kína sé þar. Engu að síður er landsframleiðsla á mann í Shansi undir landsmeðaltali.

Myndir

Tenglar

Heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Shanxi“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 14. janúar 2021.

Tags:

HebeiHenanHéruð KínaKínaKínverskaPinyinShaanxi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Kleópatra 7.NærætaLeikurÍslandSkörungurLandgrunnKynfrumaSnorri MássonHeimskautarefurHáhyrningurUnuhúsSnertillEldgosListi yfir íslensk kvikmyndahúsÓlympíuleikarnirBruce McGillOculisLögbundnir frídagar á ÍslandiJóhann JóhannssonBergþóra SkarphéðinsdóttirVeik beygingWikipediaLandakotsspítaliÍslensk sveitarfélög eftir sveitarfélagsnúmerumH.C. AndersenÍslamTöluorðJóhanna Guðrún JónsdóttirFiann PaulLars PetterssonÓðinnFIFOAndlagForsetakosningar á ÍslandiSovétríkinEiríkur BergmannLitla-HraunÞýskalandEinhverfaFrostaveturinn mikli 1917-18Hannes HafsteinViðskiptablaðiðSigurður IngvarssonHólmavíkVafrakakaSigrún ÞorsteinsdóttirHalla TómasdóttirKelly ClarksonÍslendingabókStríð Rússlands og ÚkraínuSkorri Rafn RafnssonFjölskyldaÍslandspósturEldgosið við Fagradalsfjall 2021ViðreisnListi yfir íslensk mannanöfnSeyðisfjörðurÁhrifssögnGuðrún Katrín ÞorbergsdóttirMjaldurFlateyriSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024HjaltlandseyjarListi yfir íslenskar kvikmyndirSölvi Geir OttesenKósovóBifröst (norræn goðafræði)AlabamaHinrik 2. EnglandskonungurJarðfræðiMiðmyndÁstþór MagnússonÍtalíaIllinoisHrísey2024Vatnajökull🡆 More