Sebastián Piñera: 35. og 37. forseti Síle

Miguel Juan Sebastián Piñera Echenique (f.

1. desember 1949, d. 6. febrúar 2024) var síleskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forseti Síle. Hann gegndi embættinu tvívegis, frá 2010 til 2014 og frá 2018 til 2022.

Sebastián Piñera
Sebastián Piñera: 35. og 37. forseti Síle
Forseti Síle
Í embætti
11. mars 2018 – 11. mars 2022
ForveriMichelle Bachelet
EftirmaðurGabriel Boric
Í embætti
11. mars 2010 – 11. mars 2014
ForveriMichelle Bachelet
EftirmaðurMichelle Bachelet
Persónulegar upplýsingar
Fæddur1. desember 1949
Santíagó, Síle
Látinn6. febrúar 2024 (75 ára) Rancovatni, Los Ríos-fylki, Síle
ÞjóðerniSíleskur
StjórnmálaflokkurRenovación Nacional
MakiCecilia Morel (g. 1973)
Börn4
HáskóliPontificia Universidad Católica de Chile
Harvard-háskóli
UndirskriftSebastián Piñera: 35. og 37. forseti Síle

Piñera var sonur stjórnmálamanns úr síleska Kristilega demókrataflokknum og er menntaður í viðskiptaverkfræði og hagfræði. Árið 2019 mat Forbes eignir Piñera upp á andvirði um 2,8 milljóna Bandaríkjadala. Samkvæmt því er Piñera einn ríkasti maður Síle. Piñera var fyrsti hægrisinnaði forseti Síle frá endalokum einræðisstjórnar Augusto Pinochet árið 1990 og fyrsti hægrimaðurinn til að ná lýðræðislegu kjöri á forsetastól landsins frá árinu 1958.

Í október árið 2019 brutust út fjöldamótmæli gegn stjórn Piñera í Santíagó. Mótmælin beindust í upphafi gegn verðhækkun á lestarmiðum en tóku fljótt á sig breiðari mynd með kröfum mótmælenda um bættar almenningsþjónustur og bætt lífsskilyrði. Piñera lýsti yfir neyðarástandi og lét senda síleska herinn á vettvang til að hafa hemil á mótmælendunum. Var þetta í fyrsta sinn sem herinn var kallaður út á götur Síle frá falli einræðisstjórnarinnar. Þann 22. október höfðu að minnsta kosti 15 mótmælendur látið lífið í átökum við hermenn. Piñera hefur reynt að miðla málum, meðal annars með því að draga verðhækkunina til baka og lýsa yfir hækkun á lágmarkslaunum í landinu en tillögur hans nægðu ekki til að sefa mótmælendurna. Þann 26. október mótmæltu um milljón manns í Santíagó Piñera og voru þetta talin fjölmennustu mótmæli í sögu landsins.

Í Pandóruskjölunum árið 2021 var upplýst um sölu á námufyrirtækinu Dominga, sem var í eigu barna Piñera, á fyrsta kjörtímabili hans árið 2010. Í kjölfarið hóf embætti ríkissaksóknara rannsókn á kröfum vegna sölunnar og á ásökunum um að Piñera hefði notað skrifstofu sína til persónulegra viðskipta í embætti. Stjórnarandstaðan á þingi Síle bar jafnframt fram embættiskæru gegn Piñera vegna málsins þann 13. september 2021.

Piñera lést í þyrluslysi árið 2024. Gabriel Boric, eftirmaður Piñera, lýsti yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna slyssins.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Michelle Bachelet
Forseti Síle
(11. mars 201011. mars 2014)
Eftirmaður:
Michelle Bachelet
Fyrirrennari:
Michelle Bachelet
Forseti Síle
(11. mars 201811. mars 2022)
Eftirmaður:
Gabriel Boric


Tags:

Síle

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Hvalfjarðargöng29. aprílFlott (hljómsveit)HveragerðiSovétríkinÁlftKatrín JakobsdóttirVladímír PútínMahatma GandhiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaLangaBjörn Sv. BjörnssonMorð á ÍslandiBrisStari (fugl)Ásta SigurðardóttirHeimskautarefurKárahnjúkavirkjunLady GagaIngvar Eggert SigurðssonDiljá (tónlistarkona)Íslensk mannanöfn eftir notkunVertu til er vorið kallar á þigM/S SuðurlandHelliseyjarslysiðSérhljóðÖrlagasteinninnMargrét ÞórhildurJökulsárlónGeirmundur heljarskinn HjörssonÞorvaldur Lúðvík SigurjónssonSiðfræði24. aprílMaríustakkarGrænmeti721. septemberÖldÍbúar á ÍslandiRaunhyggjaArnaldur Indriðason14HelförinHjartaFiann PaulSif8Ríkissjóður ÍslandsFacebookYrsa SigurðardóttirVíkingarListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969JakobsvegurinnÝmsir - Dýrin í Hálsaskógi (plata)HelsinkiEpliLeikurHrognkelsiÚrvalsdeild kvenna í körfuknattleikMæðradagurinnDonald Duart MacleanLíparítSikileyN-reglurSvartfjallalandHjartarsalt25. aprílListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiRíkisstjórn ÍslandsNorræn goðafræðiBesta deild karlaÍslenski fáninnAuðnutittlingurGrænland🡆 More