Rob Lowe (fæddur Robert Hepler Lowe , 17.
mars">17. mars 1964) er bandarískur leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í The West Wing, St. Elmo's Fire, The Outsiders, Brothers & Sisters og Parks and Recreation.
Rob Lowe | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Robert Hepler Lowe 17. mars 1964 |
Ár virkur | 1979 - |
Helstu hlutverk | |
Sam Seaborn í The West Wing Robert McCallister í Brothers & Sisters Chris Traeger í Parks and Recreation Sodapop Curtis í The Outsiders Billy Hicks í St. Elmo´s Fire |
Lowe fæddist í Charlottesville, Virginía en ólst upp í Malibu, Kaliforníu og er af þýskum, írskum,enskum, welskum og skoskum uppruna. Bróðir hans er leikarinn Chad Lowe.
Lowe stundaði nám við Santa Monica High School ásamt leikurunum Emilio Estevez, Charlie Sheen, Sean Penn, Chris Penn og Robert Downey, Jr.
Lowe giftist snyrtifræðingnum Sheryl Berkoff árið 1991 og saman eiga þau tvö börn.
Lowe gaf út ævisögu sína Stories I Only Tell My Friends í maí 2011.
Árið 1988 þá lenti Lowe í kynlífshneyksli eftir að myndbandi með honum og tveimur stúlkum var lekið. Önnur stúlkan var sextán ára en hin var 22 ára. Myndbandið var tekið upp kvöldið fyrir ráðstefnu demókrata árið 1988 í Atlanta. Lowe tilkynnti að hann vissi ekki að önnur stúlkan hafði verið undir aldri og var það staðfest að þau kynntust á bar.
Öðrum hluta myndbandsins var einnig lekið en sá sýndi Lowe og vin hans Justin Moritt hafa samfarir við unga konu að nafni Jennifer á hótelherbergi í París. Þessi hluti af myndbandinu var seldur sem kynlífsmyndband. Hafði þetta alvarlegar afleiðingar fyrir feril og ímynd hans.
Í apríl 2008 hóf Lowe málaferli gagnvart þremur fyrrverandi starfsmönnum sínum vegna brota á samningum og niðrandi ummæla um fjölskyldu hans. Þann 19. júní 2008 þá var tveimur málsóknunum vikið frá vegna skorts á lagalegum grundvelli. Málaferlunum lauk í mars 2009 eftir að þeim var vísað frá að ósk lögmanna beggja aðila.
Lowe var fyrsti karlkyns forsvarsmaður fyrir Lee National Denim Day fjáröflunarsamkomuna árið 2000 en hún aflar fjármagni fyrir rannsóknir á brjóstakrabbameini og kennslu. Bæði amma og langammma hans voru greindar með brjóstakrabbamein og móðir hans lést úr sjúkdómnum árið 2003.
Lowe er stofnandi Homeowner's Defense Fund, sjálfseignarstofnun sem ætlað er að aðstoða skipulagningu landsvæða í Santa Barbara sýslunni og gagnsæis hjá stjórnvöldum.
Lowe kom fram í leikritinu A Little Hotel on the Side árið 1992.
Fyrsta sjónvarpshlutverk Lowe var árið 1979 í A New Kind of Family þar sem hann lék Tony Flanagan til ársins 1980.
Á árunum 2003 – 2006 lék Lowe aðahlutverkið í þremur þáttum sem lifðu stutt, The Lyon's Den sem John „Jack“ Turner, Beach Girls sem Jack Kilvert og Dr. Vegas sem dr. Billy Grant.
Lowe lék eitt af aðalhlutverkunum í The West Wing sem Sam Seaborn sem hann lék frá 1999 – 2003. Endurtók hann hlutverkið í seinustu þáttunum af sjöundu þáttaröðinni.
Frá 2006 – 2010 lék Lowe í Brothers & Sister sem Robert McCallister eiginmann persónu Calistu Flockhart.
Hann hefur síðan 2010 verið hluti af Parks and Recreation sem Chris Traeger.
Fyrsta kvikmyndahlutverk Lowe var árið 1983 í The Outsider þar sem hann lék Sodapop Curtis. Leikstjóri myndarinnar var Francis Ford Coppola og meðleikarar hans voru Matt Dillon, Tom Cruise, Emilio Estevez, C. Thomas Howell og Patrick Swayze. Lék hann síðan í Oxford Blues, St. Elmo's Fires og Youngblood á árunum 1984 – 1986.
Lowe var þekktur á 9. áratugnum fyrir að vera hluti af Brat Pack hópnum, ásamt Judd Nelson, Mare Winningham, Anthony Michael Hall, Demi Moore, Ally Sheedy, Molly Ringwald, Emilio Estevez og Andrew McCarthy.
Hann hefur síðan þá komið fram í kvikmyndum á borð við Wayne's World, Mulholland Falls, Contact, Under Pressure, Thank You for Smoking og Breakaway.
Lék hann yngri útgáfuna af persónunni Nr. 2 í Austin Powers myndunum.
Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1983 | The Outsiders | Sodapop Curtis | |
1983 | Class | Skip | |
1984 | The Hotel New Hampshire | John Berry | |
1984 | Oxford Blues | Nick De Angelo | |
1985 | St. Elmo's Fire | Billy Hicks | |
1986 | Youngblood | Dean Youngblood | |
1986 | About Last Night | Danny Martin | |
1987 | Square Dance | Rory | |
1988 | Masquerade | Tim Whalen | |
1990 | Bad Influence | Alex | |
1991 | The Dark Backward | Dirk Delta | |
1992 | The Finest Hour | Lawrence Hammer | |
1992 | Wayne's World | Benjamin Kane | |
1995 | Frank & Jesse | Jesse James | |
1995 | Tommy Boy | Paul Barish | ónefndur á lista |
1996 | Fox Hunt | Edison Pettibone | |
1996 | Mulholland Falls | Hodlum | óskráður á lista |
1997 | Austin Powers: International Man of Mystery | Vinur glæpamanns | ónefndur á lista |
1997 | Living in Peril | Walter Woods | |
1997 | Contact | Richard Rank | |
1997 | Hostile Intent | Cleary | |
1998 | For Hire | Mitch Lawrence | |
1999 | Dead Silent | Kevin Finney | |
1999 | Austin Powers: The Spy Who Shagged Me | Yngri útgáfan af Nr. 2 | |
2000 | Under Pressure | John Spencer | |
2000 | The Specials | The Weevil | |
2001 | Proximity | William Conroy | |
2002 | Austin Powers in Goldmember | Mið Nr. 2 | |
2003 | View from the Top | Aðstoðar flugstjórinn Steve Bench | |
2005 | Thank You for Smoking | Jeff Megall | |
2009 | The Invention of Lying | Brad Kessler | |
2011 | I Melt With You | Jonathan | |
2011 | Breakaway | Þjálfarinn Dan Winters | |
2012 | Knife Fight | Paul Turner | |
2012 | Glide | Jack | Í frumvinnslu |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1979 – 1980 | A New Kind of Family | Tony Flanagan | 11 þættir |
1980 – 1981 | ABC Afterschool Specials | Charles Elderberry/Jeff Bartlett | 2 þættir |
1981 | Mean Jeans | ónefnt hlutverk | Sjónvarpssería |
1983 | Thursday's Child | Sam Alden | Sjónvarpsmynd |
1990 | If the Shoe Fits | Francesco Salvitore | Sjónvarpsmynd |
1993 | Great Performances | Læknirinn Culrowicz | Þáttur: Suddenly, Last Summer |
1994 | The Stand | Nick Andros | 4 þættir |
1995 | The Larry Sanders Show | Rob Lowe | Þáttur: The Bump |
1996 | On Dangerous Ground | Sean Dillon | Sjónvarpsmynd |
1997 | Midnight Man | Sean Dillon | Sjónvarpsmynd |
1998 | Stories from My Childhood | ónefnt hlutverk | Þáttur: Ivan and His Magic Pony Talaði inn á |
1998 | Outrage | Tom Casey | Sjónvarpsmynd |
1999 | Atomic Train | John Seger | Sjónvarpsmynd |
1999 | Winding Roads | Partýmeðlimur | Sjónvarpsmynd |
2001 | Jane Doe | David Doe | Sjónvarpsmynd |
2002 | Framed | Mike Santini | Sjónvarpsmynd |
2002 | The Christmas Shoes | Robert Layton | Sjónvarpsmynd |
2003 | The Lyon's Den | John ´Jack´ Turner | 13 þættir |
2004 | Salem's Lot | Ben Mears | Sjónvarpsmynd |
2004 | Perfect Strangers | Lloyd Rockwell | Sjónvarpsmynd |
2005 | Beach Girls | Jack Kilvert | 6 þættir |
2005 | The Christmas Blessing | Robert Layton | Sjónvarpsmynd |
1999 – 2006 | The West Wing | Sam Seaborn | 82 þættir |
2004 – 2006 | Dr. Vegas | Dr. Billy Grant | 10 þættir |
2006 | A Perfect Day | Rob Harlan | Sjónvarpsmynd |
2007 | Family Guy | Stanford Corday | Þáttur: Road to Rupert Talaði inn á |
2007 | Stir of Echoes: The Homecoming | Ted Cogan | Sjónvarpsmynd |
2007 | Brothers & Sisters: Family Album | Robert McCallister | Sjónvarpsmynd |
2009 | Too Late to Say Goodbye | Bart Corbin | Sjónvarpsmynd |
2006 – 2010 | Brothers & Sisters | Robert McCallister | 78 þættir |
2011 | Young Justice | Kapteinn Marvel | 2 þættir |
2012 | Drew Peterson: Untouchable | Drew Peterson | Sjónvarpsmynd |
2011-2012 | Californication | Eddie Nero | 4 þættir |
2010 – til dags | Parks and Recreation | Chris Traeger | 40 þættir |
2013 | To Appomattox | Ulysses S. Grant | 8 þættir Í frumvinnslu |
Emmy-verðlaunin
Golden Globe-verðlaunin
Razzie-verðlaunin
Screen Actors Guild-verðlaunin
TV Guide-verðlaunin
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Rob Lowe, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.