Patrick Wayne Swayze (18.
ágúst">18. ágúst 1952 – 14. september 2009) var bandarískur leikari, dansari, laga- og textahöfundur. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sín sem „kaldi gæinn“ í kvikmyndunum Dirty dancing og Ghost. Ferill hans í kvikmyndum og sjónvarpi spannaði 30 ára tímabil og árið 1991 tilnefndi People magazine hann „kynþokkafyllsta karlmanninn“.
Í janúar 2008 greindist hann með langt gengið krabbamein í briskirtli. Heilsu hans hrakaði í sífellu eftir það og sjúkdómurinn leiddi hann til dauða þann 14. september 2009. Síðasta hlutverk hans var í sjónvarpsþáttaröð sem hét The Beast sem var frumsýnd í janúar 2009. Hann gat ekki tekið þátt í auglýsingaherferð fyrir þættina vegna heilsuleysis og var sýningu þáttanna hætt í júní 2009.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Patrick Swayze, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.