Níóbín (einnig kólumbíum) er frumefni með efnatáknið Nb og sætistöluna 41 í lotukerfinu.
Níóbín finnst í níóbíti og er sjaldgæfur, mjúkur, grár og sveigjanlegur hliðarmálmur, notaður í málmblöndur. Það er notað til að búa til sérstakt stál og í sterk samskeyti. Níóbín var fyrst uppgötvað í ýmsum tegundum kólumbíts (nú kallað níóbít) og var í upphafi nefnt eftir þessari steintegund.
Vanadín | |||||||||||||||||||||||||
Sirkon | Níóbín | Mólýbden | |||||||||||||||||||||||
Tantal | |||||||||||||||||||||||||
|
Níobín er gljáandi grár, linur málmur sem tekur á sig bláleitan blæ ef hann kemst í langvarandi snertingu við andrúmsloft við stofuhita. Efnafræðilegir eiginleikar níóbíns eru næstum þeir sömu og tantals, sem er fyrir neðan það í lotukerfinu.
Þegar búið er að hreinsa níóbín verður að hafa það í vernduðum lofthjúp, jafnvel við meðalhita. Níóbín byrjar að oxast í lofti við 200°C og oxunarstig þess eru +2, +3 og +5.
Níóbín er til ýmissa nota, það er notað í sumar tegundir af ryðfríu stáli og málmblöndur með ójárnblönduðum efnum. Þessar málmblöndur eru sterkar og eru oft notaðar til byggingar leiðslukerfa. Önnur not:
Níóbín breytist í ofurleiðara þegar það er kælt niður á lághitafræðilegt hitastig. Við staðalþrýsting hefur það hæsta markhita allra frumefnaofurleiðara, 9,3 K. Að auki er það eitt af þremur ofurleiðurum frumefna sem haldast ofurleiðarar í viðurveru sterks segulsviðs (hin tvö eru vanadín og teknetín). Níóbín-tin og níóbín-títan málmblöndur eru notaðar í víra fyrir ofurleiðandi segulstál sem geta myndað gríðarlega sterk segulsvið.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Níóbín, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.