Luis Arce: Forseti Bólivíu

Luis Alberto „Lucho“ Arce Catacora (f.

28. september 1963) er bólivískur stjórnmálamaður og núverandi forseti Bólivíu. Hann var fjármálaráðherra Bólivíu á stjórnartíð Evo Morales forseta. Hann var frambjóðandi Sósíalistahreyfingarinnar (MAS-IPSP) í forsetakosningum ársins 2020. Samkvæmt útgönguspám lenti hann í fyrsta sæti í fyrri umferð kosninganna, sem fóru fram þann 19. október, með 52,4% atkvæða og nógu rúmt forskot á keppinauta sína til að sleppa við að kallað yrði til annarrar umferðar.

Luis Arce
Luis Arce: Fjármálaráðherra, Forsetakosningarnar 2020, Fræðastörf
Arce árið 2020.
Forseti Bólivíu
Núverandi
Tók við embætti
8. nóvember 2020
VaraforsetiDavid Choquehuanca
ForveriJeanine Áñez
Fjármálaráðherra Bólivíu
Í embætti
23. janúar 2006 – 24. júní 2017
Í embætti
23. janúar 2019 – 10. nóvember 2019
Persónulegar upplýsingar
Fæddur28. september 1963 (1963-09-28) (60 ára)
La Paz, Bólivíu
ÞjóðerniBólivískur
StjórnmálaflokkurSósíalistahreyfingin
MakiJessica Graciela Mosqueira Martínez Lourdes Brigida Durán Romero
Börn3
HáskóliÆðri háskólinn í San Andrés
Warwick-háskóli
UndirskriftLuis Arce: Fjármálaráðherra, Forsetakosningarnar 2020, Fræðastörf

Fjármálaráðherra

Arce var útnefndur í ráðherraembætti árið 2006. Hann stóð fyrir þjóðnýtingu bólivískra kolvetnis-, fjarskipta- og námufélaga og fyrir stofnun Suðurbankans. Á ráðherratíð hanns jókst verg landsframleiðsla um 344% og tíðni fátæktar lækkaði úr 38% í 15%.

Árið 2011 mat bandaríska hagfræðitímaritið American Economy Magazine Arce sem áttunda besta fjármálaráðherra heimshlutans af 18. Í aðdraganda forsetakosninga ársins 2014 benti The Wall Street Journal á Arce sem eitt helsta trompið í baráttu Morales fyrir endurkjöri á forsetastól.

Forsetakosningarnar 2020

Eftir að Evo Morales sagði af sér og yfirgaf Bólivíu í kjölfar umdeildra kosninga í nóvember 2019 kallaði starfandi forsetinn Jeanine Áñez til nýrra forsetakosninga. Þann 19. janúar 2020 lýsti Morales því yfir eftir samningaviðræður í Argentínu að Luis Arce og fyrrum utanríkisráðherrann David Choquehuanca yrðu frambjóðendur Sósíalistahreyfingarinnar (MAS) til forseta og varaforseta í kosningunum.

Andstæðingar Arce útmáluðu hann sem strengjabrúðu Morales en þessu höfnuðu hann og flokkur hans. Einn af leiðtogum MAS, David Apaza, reyndi að greina á milli Morales og kosningaherferðar Arce og lagði áherslu á að Morales myndi ekki skipta sér af mögulegri ríkisstjórn Arce.

Flestar skoðanakannanir bentu til þess að Arce hefði nógu afgerandi forskot á keppinauta sína til að vinna kosningarnar án þess að kalla þyrfti til annarrar umferðar. Á kosninganótt höfðu frambjóðendur hægriflokkanna að nokkru leyti sameinast að baki fyrrum forsetans Carlos Mesa og sumir aðrir frambjóðendur, þar á meðal Áñez, höfðu dregið framboð sín til baka til að forðast að kljúfa atkvæðahópinn. Útgönguspár sem könnunarfyrirtækið Ciesmori birti morguninn 19. október bentu þó til þess að Arce hefði hlotið 52,4% atkvæðanna, sem nægði til að sleppa við aðra kosningaumferð. Arce og flokkur hans lýstu yfir sigri, sem Áñez staðfesti á Twitter-síðu sinni stuttu síðar. Carlos Mesa, sem lenti í öðru sæti, viðurkenndi ósigur á blaðamannafundi og sagði að fyrstu tölurnar sýndu fram á „sterkan og skýran“ sigur Arce. Arce tók við embætti forseta þann 8. nóvember 2020.

Fræðastörf

Arce er með mastersgráðu í hagfræðivísindum frá Warwick-háskóla í Bretlandi, þar sem hann bjó frá 1996 til 1997. Árið 1991 útskrifaðist hann með BA-gráðu í hagfræði frá Æðri háskólanum í San Andrés. Hann útskrifaðist einnig sem endurskoðandi frá Bankafræðastofnuninni (Instituto de Educación Bancaria) árið 1984 og talar ensku, spænsku og portúgölsku.

Arce hefur verið boðið að tala við ýmsa háttvirta háskóla víðs vegar um heim, meðal annars Harvard-háskóla, Columbia-háskóla, Ameríska háskólann og Pittsburgh-háskóla.

Arce hefur birt fjölda bóka og greina um hagfræði, meðal annars „Bólivíska hagfræðilega samfélagslega framleiðslukerfið“ (2015), „Óvissa og dollaravæðing í Bólivíu“, „Er gangverk gjaldeyrismarkaðar seðlabankans viðeigandi?“, „Stutt mat á bólivísku gengisstjórninni“, „Framlag til rökræðunnar um dollaravæðinguna“, „Eftirspurn eftir peningum í Bólivíu“ og „Fjárhagsleg frjálslyndisvæðing og samþjöppun í bankakerfinu“.

Einkahagir

Arce á þrjú börn: Luis Marcelo, Rafael Ernesto og Camilu Danielu.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Jeanine Áñez
(starfandi)
Forseti Bólivíu
(8. nóvember 2020 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

Luis Arce FjármálaráðherraLuis Arce Forsetakosningarnar 2020Luis Arce FræðastörfLuis Arce EinkahagirLuis Arce TilvísanirLuis ArceBólivíaEvo Morales

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Friðrik ErlingssonÞursaflokkurinnGuðríður ÞorbjarnardóttirRíkisútvarpiðFullveldi1535ÓfærðHaustÓákveðið fornafnHávamálVíkingarBryndís helga jackEsjaTröllVestmannaeyjagöngSvartidauðiOtto von Bismarck1941HrafnÞorramaturMegindlegar rannsóknirSifLandnámabókSamlífiKanadaHrafninn flýgurGrænland2003BerlínarmúrinnBarbra StreisandSuðurlandsskjálftinn 29. maí 2008Katrín JakobsdóttirÍslenskaVerbúðin1990Regla PýþagórasarIngvar Eggert SigurðssonPerúHandveðSexSnæfellsjökullBoðhátturGuðmundur Franklín JónssonNPálmasunnudagurWalthéryVestmannaeyjarVeldi (stærðfræði)ABBARómÍslandSymbianHjaltlandseyjarHvalirJón ÓlafssonSjálfstætt fólkBrennu-Njáls sagaEdda FalakIðnbyltinginNígeríaÁstralíaVerg landsframleiðslaÓlafsvíkMóbergLottóListi yfir íslenskar hljómsveitirBragfræðiEgyptalandKvenréttindi á ÍslandiLudwig van BeethovenLýðveldið FeneyjarBretlandEpliBjór á Íslandi🡆 More