Javier Felipe Ricardo Pérez de Cuéllar Guerra (f.
19. janúar 1920, d. 4. mars 2020) var perúskur erindreki og stjórnmálamaður sem var fimmti aðalritari Sameinuðu þjóðanna frá 1. janúar 1982 til 31. desember 1991.
Javier Pérez de Cuéllar | |
---|---|
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna | |
Í embætti 1. janúar 1982 – 31. desember 1991 | |
Forveri | Kurt Waldheim |
Eftirmaður | Boutros Boutros-Ghali |
Forsætisráðherra Perú | |
Í embætti 22. nóvember 2000 – 28. júlí 2001 | |
Forseti | Valentín Paniagua |
Forveri | Federico Salas |
Eftirmaður | Roberto Dañino |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 19. janúar 1920 Líma, Perú |
Látinn | 4. mars 2020 (100 ára) Líma, Perú |
Þjóðerni | Perúskur |
Maki | Yvette Roberts (1922–2013) Marcela Temple Seminario (1933–2013) |
Undirskrift |
Pérez de Cuéllar var fulltrúi á fyrsta Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1946. Sem aðalritari Sameinuðu þjóðanna frá 1982 til 1991 var eitt hans fyrsta verkefni að stýra viðræðum milli Bretlands og Argentínu um yfirráð Falklandseyja í kjölfar Falklandseyjastríðsins. Hann átti jafnframt þátt í því að semja um vopnahlé í stríði Íraks og Írans.
Hann bauð sig fram í forsetakosningum Perú árið 1995 en tapaði fyrir Alberto Fujimori. Þegar Fujimori sagði af sér varð Pérez de Cuéllar forsætisráðherra og utanríkisráðherra Perú frá 2000 til 2001. Árið 2004 sagði hann af sér sem sendiherra Perú í Frakklandi. Pérez de Cuéllar var einnig meðlimur í Madrid-klúbbnum, hópi meira en 100 fyrrverandi forseta og forsætisráðherra lýðræðisríkja sem vinna að því að efla lýðræði um heim allan. Þegar Pérez de Cuéllar lést var hann bæði elsti lifandi fyrrverandi forsætisráðherra Perú og Aðalritari Sameinuðu þjóðanna.
Fyrirrennari: Kurt Waldheim |
| Eftirmaður: Boutros Boutros-Ghali | |||
Fyrirrennari: Federico Salas |
| Eftirmaður: Roberto Dañino |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Javier Pérez de Cuéllar, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.