Ingólfshöfði er klettahöfði við ströndina suður af Öræfajökli í Austur-Skaftafellssýslu.
Hann er 76 metrar á hæð þar sem hann er hæstur og er hömrum girtur en að norðvestan er að honum sandalda, Kóngsalda, og þar er hægt að komast upp á hann. Höfðinn er friðlýstur en bændur í Öræfum mega nytja hann á hefðbundinn hátt.
Höfðinn var eitt sinn eyja en er nú tengdur við land með sandi sem Skeiðará hefur borið fram. Hann er um 1200 m á lengd og 750 m á breidd. Hluti hans er vel gróinn. Mikið fuglalíf er í höfðanum, einkum langvía, lundi, fýll og álka og var áður mikil eggja- og fuglatekja í höfðanum og tilheyrði veiðirétturinn Sandfelli í Öræfum. Útræði var frá höfðanum fram á 18. öld og má sjá þar rústir af verbúðum, en hlaup í Skeiðará eru sögð hafa spillt skipalæginu. Í höfðanum er skipsbrotsmannaskýli, viti og radíóviti. Fyrst var settur viti á Ingólfshöfða árið 1916. Núverandi viti var reistur árið 1948 og er ferstrendur 10 metra hár turn. Ljóseinkenni hans er Fl(2)W 10s (2 hvít blikkljós á 10 sekúndna fresti).
Höfðinn er nefndur eftir Ingólfi Arnarsyni, sem sagt er að hafi haft þar vetursetu fyrsta veturinn sem hann var hér, en Hjörleifur fóstbróðir hans á að hafa farið lengra og haft vetursetu við Hjörleifshöfða. Minnisvarði um dvöl Ingólfs og Hallveigar konu hans er í höfðanum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ingólfshöfði, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.