Biskup Gísli Jónsson

Gísli Jónsson (latína: Gilbertus Ionas Islandus) (um 1515 – 3.

    Þessi grein fjallar um Gísla Jónsson biskup í Skálholti á 16. öld. Á aðgreiningarsíðunni má finna aðra menn með sama nafni.

september">3. september 1587) var biskup í Skálholti frá 1558.

Hann var sonur Jóns Gíslasonar prests í Hraungerði og Gaulverjabæ í Flóa og fylgikonu hans, Vilborgar Þórðardóttur. Hann lærði hjá Ögmundi Pálssyni í Skálholti og hélt síðan til Þýskalands. Hann var prestur í Skálholti frá 1538 og var einn af siðaskiptamönnunum þar í tíð Ögmundar. Hann varð prestur í Selárdal í Arnarfirði frá 1546 en hrökklaðist til Danmerkur undan Jóni Arasyni sem bar upp á hann guðlast, uppreisn gegn kirkjulögum og boðun villutrúar. Hann kom þó aftur til Íslands 1551 og fór aftur í Selárdal en var kosinn biskup 1556. Veitingarbréfið er dagsett 28. febrúar 1558.

Gísli reyndi að bæta úr brýnni þörf fyrir sálma í anda lúterstrúar og þýddi talsvert en af vanefnum. Hann gaf út sálmabók 1558 og er aðeins til eitt eintak af henni svo vitað sé. Gísli reyndi að uppræta ýmsar menjar kaþólskunnar og lét meðal annars kljúfa og brenna krossinn helga frá Kaldaðarnesi, sem Gissur Einarsson hafði flutt heim að Skálholti.

Kona hans var Kristín Eyjólfsdóttir (f. um 1515), yngsta dóttir Eyjólfs mókolls Gíslasonar í Haga á Barðaströnd. Árið 1535 eignaðist hún dóttur, Guðrúnu, með Gísla bróður sínum, sem einnig hafði barnað Þórdísi systur þeirra. Gísli flúði úr landi og sneri ekki aftur en systurnar flúðu í Skálholt á náðir Ögmundar biskups sem var frændi þeirra og var engu þeirra refsað fyrir sifjaspellin, enda var Stóridómur ekki settur á laggirnar fyrr en tæpum 30 árum síðar. Svo var látið heita að í báðum tilvikunum hefði verið um nauðgun að ræða. Í Skálholti kynntust þau Kristín og Gísli. Á meðal barna þeirra voru Helga kona Erasmusar Villadtssonar skólameistara í Skálholti og seinast prests á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Guðrún kona Gísla Sveinssonar Skálholtsráðsmanns og sýslumanns á Miðfelli, Stefán prestur í Odda, Árni prestur í Holti undir Eyjafjöllum og Vilborg kona Þorvarðar Þórólfssonar á Suður-Reykjum.

Fyrirrennari:
Marteinn Einarsson
Skálholtsbiskupar Eftirmaður:
Oddur Einarsson
Biskup Gísli Jónsson  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

1515155815873. septemberBiskupSkálholt

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Íslenskt mannanafnRjúpaLuigi FactaBaldur ÞórhallssonMagnús EiríkssonÁstandiðOrkustofnunAlþingiskosningarÍslenskaFullveldiCarles PuigdemontÓlafur Jóhann ÓlafssonAlþingiskosningar 2009Krónan (verslun)HnísaSaga ÍslandsIstanbúlBónusParísHarvey WeinsteinFornafnSmáríkiÍslenskar mállýskurÍsland Got TalentHvalfjörðurÍbúar á ÍslandiArnaldur IndriðasonÓlafur Grímur BjörnssonFljótshlíðNæfurholtÓfærðDóri DNADýrin í HálsaskógiHeimsmetabók GuinnessKristrún FrostadóttirJakob 2. EnglandskonungurAlþingiskosningar 2016Listi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999HvítasunnudagurRúmmálSMART-reglanTyrkjarániðEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024SandgerðiEldgosið við Fagradalsfjall 2021Vladímír PútínTyrklandReykjanesbærFiskurHvalirdzfvtÁrni BjörnssonÍslenska sjónvarpsfélagiðJohannes VermeerFuglafjörðurListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Guðrún PétursdóttirHelförin1974Pétur Einarsson (f. 1940)ÁrbærSoffía JakobsdóttirTímabeltiKatlaYrsa SigurðardóttirBjörgólfur Thor BjörgólfssonSvavar Pétur EysteinssonAftökur á ÍslandiHeyr, himna smiðurSankti PétursborgEyjafjallajökullJón Múli ÁrnasonLandnámsöldKnattspyrnufélagið HaukarFóturLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisSagnorð🡆 More