Geert Wilders: Hollenskur stjórnmálamaður

Geert Wilders (f.

6. september 1963) er hollenskur stjórnmálamaður og formaður hollenska Frelsisflokksins. Wilders er þekktur fyrir gagnrýni sína á íslamstrú, Evrópusambandið og ólöglegan innflutning fólks til Hollands.

Geert Wilders
Geert Wilders: Hollenskur stjórnmálamaður
Geert Wilders árið 2019.
Fæddur6. september 1963 (1963-09-06) (60 ára)
Venlo, Hollandi
ÞjóðerniHollenskur
MenntunOpen Universiteit Nederland
FlokkurFrelsisflokkurinn
MakiKrisztina Márfai (g. 1992)

Æviágrip

Geert Wilders fæddist árið 1963 í bænum Venlo. Áður en hann stofnaði Frelsisflokkinn hafði hann starfað sem ritari í Frelsis- og lýðræðisflokknum.

Wilders stofnaði Frelsisflokkinn upp úr rústum Lista Pim Fortuyn, sem áður hafði verið helsti flokkur hægri-popúlista í Hollandi. Flokkurinn hefur ætíð verið einkaeign Wilders sjálfs, sem er eini skráði meðlimur hans. Frelsisflokkurinn hlaut sex prósent atkvæða í þingkosningum Hollands árið 2006 og komst inn á þing. Wilders féllst síðar á að styðja minnihlutastjórn Marks Rutte í skiptum fyrir að tiltekin stefnumál Frelsisflokksins hlytu framgang.

Wilders var frumkvöðull að popúlískri stefnu þar sem vinstrisinnuðum stefnum í félags- og efnahagsmálum var blandað saman við hægrisinnaðar og íhaldssamar menningarhugmyndir og við andúð á íslamstrú og múslimskum innflytjendum. Wilders hefur haldið því fram að koma innflytjenda til Evrópu sé helsta ógnin við evrópska menningu og hefur sakað innlenda félagslega elítu um að grafa undan Hollandi með árásum á þjóðríkið.

Árið 2016 var réttað yfir Wilders vegna ásakana í hans garð um hatursorðræðu í tengslum við ummæli hans um innflytjendur frá Marokkó tveimur árum fyrr. Wilders var sýknaður af ákærunni um hatursorðræðu en var talinn sekur um mismunun með ummælum sínum.

Flokkur Wilders vann afgerandi sigur í þingkosningum Hollands árið 2023. Flokkurinn hlaut 37 þingsæti en hafði haft 16 fyrir kosningarnar. Wilders hét því í kjölfarið að stefna að myndun nýrrar stjórnar og verða forsætisráðherra. Í mars 2024 sagðist Wilders hins vegar ekki lengur vonast eftir forsætisráðherrastólnum vegna erfiðleika í stjórnarmyndunarviðræðum við aðra flokka.

Tilvísanir

Tags:

AðflutningurEvrópusambandiðHollandÍslam

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Norræn goðafræðiKnattspyrnufélagið FramEldurOkjökullKarlsbrúin (Prag)FnjóskadalurMáfarÖskjuhlíðMaineSeldalurKosningarétturÚkraínaLitla hryllingsbúðin (söngleikur)SkordýrMorð á ÍslandiJón Sigurðsson (forseti)ÍrlandISO 8601ÚtilegumaðurFjalla-EyvindurAgnes MagnúsdóttirUppstigningardagurNorræna tímataliðSýslur ÍslandsGrameðlaMöðruvellir (Eyjafjarðarsveit)ÓslóRómverskir tölustafirÞjórsáSumardagurinn fyrstiHrafna-Flóki VilgerðarsonHollandBjörk GuðmundsdóttirVopnafjörðurHættir sagna í íslenskuEfnafræðiÝlirListi yfir páfaJóhannes Haukur JóhannessonFæreyjarFermingDaði Freyr PéturssonSmokkfiskarSmáríkiSveitarfélagið ÁrborgHallgerður HöskuldsdóttirForsetakosningar á Íslandi 2020Margrét Vala MarteinsdóttirAlþingiskosningar 2017SvartfjallalandSólstöðurOrkumálastjóriÁrnessýslaSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirListi yfir íslensk skáld og rithöfundaInnrás Rússa í Úkraínu 2022–Hljómsveitin Ljósbrá (plata)Megindlegar rannsóknirHáskóli ÍslandsLaufey Lín JónsdóttirListi yfir fylki og yfirráðasvæði Bandaríkjanna eftir stærðDimmuborgirJaðrakanDómkirkjan í ReykjavíkGísla saga Súrssonar26. aprílForsetakosningar á Íslandi 2012Keila (rúmfræði)KynþáttahaturTaílenskaBleikjaSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024BiskupStríðAkureyri🡆 More