Engjaskófir

Engjaskófir (fræðiheiti: Peltigera) eru ættkvísl fléttna af engjaskófarætt.

Þær vaxa oftast á grónum jarðvegi og eru af formgerð blaðfléttna. Ættkvíslin er útbreidd um allan heim og inniheldur 66 tegundir. Lífefnafræði fléttnanna er lítt þekkt en þær gefa margar hverjar frá sér lífvirkar annars stigs efnaskiptaafurðir. Meðal nýlegra rannsókna sem stundaðar hafa verið á engjaskófa fléttum má nefna kennigreiningu ljósbýlinga fléttnanna, en innan ættkvíslarinnar er að finna tegundir sem nýta sér grænþörunga og blágerla til ljóstillífunar. Í ljós hefur komið að ljósbýlingar engjaskófa eru um margt frábrugðnir sömu bakteríu- eða þörungahópum sem lifa sjálfstæðu lífi utan fléttunnar

Engjaskófir
Peltigera leucophlebia
Vísindaleg flokkun
Ríki: Svepparíki (Fungi)
Fylking: Asksveppir (Ascomycota)
Flokkur: Diskfléttur (Lecanoromycetes)
Ættbálkur: Engjaskófabálkur (Peltigerales)
Ætt: Engjaskófarætt (Peltigeraceae)
Ættkvísl: Engjaskófir (Peltigera)
Tegundir á Íslandi

Sjá texta.

Tegundir á Íslandi

Listinn er byggður á skrá yfir fléttur á Íslandi frá árinu 2009 nema annað sé tekið fram. Íslensk heiti eru frá Herði Kristinssyni.

  • Peltigera aphthosa - Flannaskóf
  • Peltigera britannica - Bretaskóf
  • Peltigera canina - Engjaskóf
  • Peltigera collina - Klettaskóf
  • Peltigera didactyla - Lambaskóf
  • Peltigera extenuata - Gimbraskóf
  • Peltigera hymenina - Hagaskóf
  • Peltigera islandica - Foldarskóf eða Íslandsskóf[heimild vantar]
  • Peltigera kristinssonii - Dældaskóf
  • Peltigera lepidophora - Hosuskóf
  • Peltigera leucophlebia - Dílaskóf
  • Peltigera lyngei -
  • Peltigera malacea - Mattaskóf
  • Peltigera membranacea - Himnuskóf
  • Peltigera monticola -
  • Peltigera neckeri - Blikskóf
  • Peltigera polydactylon - Glitskóf
  • Peltigera ponojensis -
  • Peltigera praetextata - Giljaskóf
  • Peltigera rufescens - Fjallaskóf
  • Peltigera scabrosa - Þéluskóf
  • Peltigera scabrosella -
  • Peltigera venosa - Æðaskóf

Heimildir

Tags:

Annars stigs efnaskiptaafurðirBlágerlarEngjaskófarættFléttaGrænþörungarLjóstillífunLífvirk efniTegund (flokkunarfræði)Ættkvísl (flokkunarfræði)

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Shizuoka-umdæmiLatibærBotnlangiSeyðisfjörðurStrikiðStöð 2Góði hirðirinnÓnæmiskerfi69 (kynlífsstelling)HaförnTíu litlir negrastrákarAuður djúpúðga KetilsdóttirHaraldur ÞorleifssonÁstaraldinForsetakosningar á Íslandi 2020LíparítJón Múli ÁrnasonSæbjúguPóllandSerhíj SkatsjenkoKnattspyrnufélag AkureyrarEdgar Allan PoeSmárakirkjaSkjaldbakaBjörn Sv. Björnsson2015KynseginÍslendingasögurSkógarþrösturFálkiDaníel Ágúst HaraldssonEnskaMannshvörf á ÍslandiDjákninn á MyrkáForseti ÍslandsKaspíahafFeneyjatvíæringurinnListi yfir íslensk millinöfnListi yfir borgarstjóra ReykjavíkurRóbert WessmanForsetakosningar á Íslandi 2016BYKORjúpaRósa GuðmundsdóttirJarðvegurÁrni Múli JónassonEldborg (Hnappadal)SúdanStrætó bs.7VíkingarÖrn ÁrnasonKokteilsósaAustur-ÞýskalandJörundur hundadagakonungurSíliYrsa SigurðardóttirHávamálJúgóslavíaEsjaStyrmirBorgarnesGolfHalldór PéturssonÞór (norræn goðafræði)21. septemberKróatíaÍslenska karlalandsliðið í handknattleikSjávarföll🡆 More