Brúará

Brúará er næst-stærsta lindá Íslands, og rennur um mörk Biskupstungna og Grímsness.

Upptök sín hefur áin í Laugardalsfjöllum, Rótarsandi, Úthlíðarhrauni og á hálendinu þar fyrir innan, í svokölluðum Brúarskörðum. Skörðin eru í raun gil þar sem vatnið seytlar úr berginu beggja megin og myndar litla fossa ofan í ána, sem þó telst bara lækur á þessum stað. Þann 20. júlí árið 1433 var Jón Gerreksson biskup settur í poka og drekkt í Brúará.

Brúará
Brúarárfoss (1889)
Brúarárfoss (1889)
Uppspretta Laugardalsfjöll
Árós Hvítá (Árnessýslu)
Lengd 38 km
Meðalrennsli 50-80 m3/sec
Hnit 64°11′43″N 20°34′13″V / 64.195272°N 20.570406°V / 64.195272; -20.570406

Brúará dregur nafn sitt af steinboga sem lá yfir hana. Fólk gat gengið yfir bogann, sem myndaði þannig eins konar náttúrulega brú. Sögusagnir segja þó að vinnumaður í Skálholti hafi brotið bogann niður svo umrenningar ættu ekki eins auðvelda leið að höfuðbólinu. Í Biskupasögum Jóns Halldórssonar segir svo frá þessu;

Á þeim stóru harðindaárum til lands og sjávar hér um anno 1602 var af fátæku umferðar og uppflosnuðu fólki úr öllum áttum mikil aðsókn að Skálholtsstað. En bryti staðarins meinti henni mundi réna, ef sú sjálfgerða brú eður steinbogi á Brúará (hvar að hún hafði það nafn) væri af brotinn. Fór því til og braut hana með mannafla — með vitund, ef ei með ráði biskupshústrúr Helgu Jónsdóttur, en án vitundar herra Odds, því það tiltæki féll honum stórilla, þá hann fékk það að vita, ávítandi brytann mjög, og kvað hvorki sér né homum nokkurt happ þar af standa mundi. Skömmu síðar drukknaði þessi bryti í Brúará.  

Ágætis fiskgegnd er í ánni og vinsælt er að veiða í henni rétt fyrir ofan Spóastaði.

Brúará rennur loks í Hvítá milli Skálholts og Sólheima, á móts við Vörðufell á Skeiðum.

Tags:

143320. júlíBiskupstungurGrímsnesJón GerrekssonLindáÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir risaeðlurWayback MachineMarylandEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024EfnaformúlaHæstiréttur ÍslandsÍþróttafélag HafnarfjarðarLýsingarhátturÞorskastríðinListi yfir íslenskar kvikmyndirValdimarRúmmálTikTokVallhumallVestmannaeyjarSönn íslensk sakamálÞjóðminjasafn ÍslandsGæsalappirSumardagurinn fyrstiListi yfir forsætisráðherra ÍslandsGuðrún PétursdóttirGeysirFylki BandaríkjannaSnæfellsjökullYrsa SigurðardóttirÍslenska sjónvarpsfélagiðBesta handrit á Kvikmyndahátíðinni í CannesKúbudeilanBjarnarfjörðurSnípuættFyrsti vetrardagurHerra HnetusmjörMánuðurÓðinnÓlafur Egill EgilssonListi yfir skammstafanir í íslenskuRagnar loðbrókFramsöguhátturSnorra-EddaSmáríkiBrúðkaupsafmæliListi yfir íslenska tónlistarmennAlaskaRíkisútvarpiðEinar JónssonListi yfir páfaMagnús Kjartansson (tónlistarmaður)FrakklandSæmundur fróði SigfússonAlþingiskosningarKrákaÞjórsáMaríuhöfn (Hálsnesi)Ólafur Darri ÓlafssonRíkisstjórn ÍslandsKúlaBjarni Benediktsson (f. 1970)Kjartan Ólafsson (Laxdælu)SelfossB-vítamínMiltaSkúli MagnússonAriel HenryHjaltlandseyjardzfvtLuigi FactaForsíðaHarry PotterKnattspyrnufélagið VíðirBreiðholtLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisSigurboginnÞóra ArnórsdóttirAladdín (kvikmynd frá 1992)Nafnháttur🡆 More