Bill Anders

William Bill Alison Anders (fæddur 17.

október">17. október 1933) er fyrrverandi bandarískur geimfari og síðar sendiherra. Hann var tunglferjuflugmaður í þriggja manna áhöfn Apollo 8 leiðangursins árið 1968, ásamt Frank Borman og Jim Lovell. Þeir þrír voru fyrstir til að yfirgefa sporbraut Jarðar, fljúga til og fara á sporbraut um Tunglið. Þeir voru einnig fyrstir til að sjá bakhlið tunglsins. Á braut um Tunglið tók Bill hina frægu ljósmynd „Jarðarupprás“. Galen Rowell hjá National Geographic tímaritinu hefur kallað myndina þá áhrifamestu sem tekin hefur verið af jörðinni. Auk þess varð Bill fyrstur manna til að taka mynd af jörðinni í heild sinni, en menn höfðu þá aldrei ferðast jafn langt frá jörðinni. Bill var í varaáhöfn Apollo 11 leiðangursins árið 1969. Hann er einn af aðeins 24 einstaklingum sem flogið hafa til tunglsins.

William Alison Anders
Bill Anders á Íslandi árið 2013.
Bill Anders á Íslandi árið 2013.
Fæddur 17. október 1933(1933-10-17)
Hong Kong
Tími í geimnum 6 dagar, 3 klukkustundir, 0 mínútur og 42 sekúndur
Verkefni Apollo 8
Bill Anders

Æfingar á Íslandi

Aðalgrein: Æfingar tunglfara í Þingeyjarsýslum

Árið 1965 kom hópur bandarískra geimfara til æfinga á Íslandi og var Bill Anders meðal þeirra. Hann hafði áður dvalið við skyldustörf í herstöð Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli og var því kunnugur staðháttum. Hann kom aftur til æfinga á Íslandi árið 1967 og var félagi hans Neil Armstrong þá með í för. Árið 2013 heimsótti Bill Ísland á ný og fór á gömlu æfingarstaði geimfaranna, m.a. í Nautagil, Drekagil og Öskju.

Apollo 8

Apollo 8 var fyrsta flugið til tunglsins. Leiðangurinn lagði af stað 21. desember 1968 og fór á braut um tunglið að kvöldi 23. desember. Geimfarið fór tíu hringi kringum tunglið áður en því var skotið aftur til jarðar. Áhöfnin lenti heilu og höldnu í Kyrrahafinu þann 27. desember 1968. Neil Armstrong og Buzz Aldrin voru í varaáhöfn Apollo 8 ásamt Fred W. Haise og þjálfuðu þeir með áhöfn Apollo 8 fyrir leiðangurinn.

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Bill Anders Æfingar á ÍslandiBill Anders Apollo 8Bill Anders TilvísanirBill Anders TenglarBill Anders17. október1933BandaríkinGeimfariJarðarupprásJörðinTunglið

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HeklaVopnafjörðurWikipediaMarokkóKarlakórinn HeklaGarðar Thor Cortes1. maíFelmtursröskunElísabet JökulsdóttirOrkustofnunLýðstjórnarlýðveldið KongóGísli á UppsölumÞorriCharles de GaulleBorðeyriForsetningHollandAlþýðuflokkurinnRússlandKrákaÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaHallgrímur PéturssonPétur EinarssonSankti PétursborgHallgerður HöskuldsdóttirHjálpNorræna tímataliðHvalfjörðurPragPétur Einarsson (flugmálastjóri)Knattspyrnufélag ReykjavíkurIkíngutÍslenski fáninnKosningarétturKonungur ljónannaEfnafræðiForsíðaÍsland Got TalentDaði Freyr PéturssonÓlafur Egill EgilssonBesta handrit á Kvikmyndahátíðinni í CannesHrefnaSnípuættMatthías JochumssonVigdís FinnbogadóttirSmáríkiÆgishjálmurKlukkustigiSeinni heimsstyrjöldinIndriði EinarssonBretlandHjálparsögnÍsafjörðurHallveig FróðadóttirListi yfir íslensk kvikmyndahúsForsetakosningar á Íslandi 2004Microsoft WindowsMiltaMiðjarðarhafiðFjalla-EyvindurÞóra ArnórsdóttirJónas HallgrímssonParísMannakornNæfurholtListi yfir íslensk skáld og rithöfundaListi yfir íslensk póstnúmerJólasveinarnirKnattspyrnufélagið ValurKarlsbrúin (Prag)Svampur SveinssonGuðrún PétursdóttirTómas A. Tómasson🡆 More