Bandaríkjaþing (enska: United States Congress) er löggjafarþing Bandaríkjanna.
Þingið starfar í tveimur deildum, efri deildin nefnist öldungadeild en neðri fulltrúadeild. Í fulltrúadeildinni sitja 435 þingmenn (auk 6 fulltrúa sem ekki hafa atkvæðisrétt) sem kjörnir úr einmenningskjördæmum til tveggja ára í senn. Þingmenn fulltrúadeildar skiptast á milli fylkja í samræmi við íbúafjölda þeirra. Áheyrnafulltrúar koma frá höfuðborginni Washington D.C., Bandarísku Samóa, Bandarísku Jómfrúaeyjum, Gvam og Norður-Maríanaeyjum, auk eins fastafulltrúa frá Púertó Ríkó sem er kosinn til fjögurra ára. Í öldungadeildinni sitja 100 þingmenn eða tveir frá hverju fylki, þeir eru kjörnir til 6 ára í senn en kosið er á tveggja ára fresti um þriðjung sæta í deildinni.
Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna hvílir allt löggjafarvald á alríkisstiginu hjá þinginu, það hefur þó aðeins forræði yfir þeim málaflokkum sem sérstaklega eru taldir upp í stjórnarskránni en allir aðrir málaflokkar eru á forræði fylkjanna. Á meðal málaflokka sem eru á forræði þingsins eru viðskipti milli fylkja og við erlend ríki, leggja á skatta (á alríkisstigi, fylki og sveitarfélög innheimta einnig skatta), alríkisdómstólar, varnarmál og stríðsyfirlýsingar.
Þinghúsið hefur verið skemmt í stríðinu 1812 þegar Bretar réðust á höfuðborgina og árið 2021 þegar stuðningsmenn Donald Trump réðust þangað inn.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Bandaríkjaþing, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.