Algirdas Julien Greimas: Litháískur táknfræðingur (1917-1992)

Algirdas Julien Greimas (1917 - 1992) var litháískur táknfræðingur.

Árið 1966 kom út eftir hann áhrifamikil bók um táknfræði (Sémantique Structurale). Hún byggir á formgerðarmálvísindum og kenningum Vladimir Propps um frásagnargerð, frásagnarliði og athafnasvið í rússneskum ævintýrum. Kenningar Greimasar eru þó víðtækari og snúast um lögmál frásagnarkerfisins í heild.

Líkön Greimas

Greimas gerði greinarmun á yfirborði frásagnarinnar og djúpgerð (eða grundvallarformgerð) merkingar og frásagna. Grundvöllurinn að líkönum Greimasar er andstæðupör/-tvenndir og mismunur (í skilgreiningu Saussures) sem skapa ákveðin vensl milli ólíkra merkingareininga. Þessi líkön nýtast sem greiningartæki til að kortleggja einstaka texta en Greimas taldi þau vera lýsandi fyrir grundvallarvirkni merkingar/frásagna.

Til þess að skoða vensl þessara þátta bjó Greimas til líkan (le carré sémiotique) sem á íslensku hefur verið kallað merkingarferhyrninginn eða fiðrildalíkanið:

Algirdas Julien Greimas: Litháískur táknfræðingur (1917-1992) 
Merkingarferhyrningurinn
  • S1 og S2: ás móthverfu (axe de l'opposition)
  • ~S1 og ~S2: hvorugás (axe du neutre)
  • S1/~S1 og S2/~S2 (skálínur): ásar þversagna (axes des contradictions)
  • S1 og ~S2: bendlun (jákvæð bendivísun/deixis)
  • S2 og ~S1: bendlun (neikvæð bendivísun/deixis)

S1 og S2 mynda andstæðupar eða -tvennd (t.d. menning og náttúra, maður og dýr, karlkyns og kvenkyns). Vensl S1/~S1 og S2/~S2 eru þannig að ~S1 er neitun S1 en forsenda S2. ~S2 er neitun S2 en forsenda S1. Til dæmis:

  • S1: karlkyns
  • S2: kvenkyns
  • ~S1: ekki-karlkyns
  • ~S2: ekki-kvenkyns

Merkingarferhyrningur Greimasar takmarkast við þessa fjóra þætti. Hann er þó þess eðlis að fjöldi slíkra líkana getur verið til staðar í einni frásögn. Það sama á við um þátttökulíkan eða aktant-líkan (Schéma actantiel) Greimasar. Þetta líkan byggist á athafnasviðum Propps en fækkar þessum athafnasviðum úr 7 í 6:

  • Sendandi
  • Viðfang
  • Viðtakandi (andstæða sendandans)
  • Hjálparhella
  • Gerandi (andstaða viðfangs)
  • Andstæðingur (andstaða hjálparhellunnar)
Algirdas Julien Greimas: Litháískur táknfræðingur (1917-1992)   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

19171992FormgerðarstefnanLitháenTáknfræðiVladimir Propp

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Íslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaKoltvísýringurAngelina JolieLýsingarorðFallorðÞorskastríðinXHúsavíkGrænlandSlóveníaÍslendingasögurSjálfbærniListi yfir eldfjöll ÍslandsÁsbirningarVesturlandSingapúrHættir sagna í íslenskuHalldór LaxnessDvergreikistjarnaKnut WicksellSóley TómasdóttirSebrahesturJarðkötturTónstigiMorð á ÍslandiHugræn atferlismeðferðSnorri SturlusonPíkaSíleÞýskalandJohn Stuart MillFreyjaSólveig Anna JónsdóttirValkyrjaFlosi ÓlafssonRaufarhöfnBelgíaSuðvesturkjördæmiKrummi svaf í klettagjáTíðbeyging sagnaAusturríkiHreysikötturÁsynjurNelson MandelaSundlaugar og laugar á ÍslandiGrikkland hið fornaMozilla FoundationListi yfir íslenska sjónvarpsþættiLómagnúpurGunnar HámundarsonÁbendingarfornafnHrognkelsiC++Eggert ÓlafssonListi yfir dulfrævinga á ÍslandiKrít (eyja)HlaupárGrænmetiPólska karlalandsliðið í knattspyrnuLandhelgisgæsla ÍslandsSkákGuðrún frá LundiSkyrJafndægurKristján 9.HöfuðborgarsvæðiðBragfræðiEvrópusambandiðStrumparnirÍslensk matargerðElon MuskVestmannaeyjarRagnar loðbrókÍsraelSkapahárHafnarfjörðurTundurdufl🡆 More