Áveita kallast sú aðferð í landbúnaði að veita vatni, úr úrkomu, ám eða stöðuvötnum á þurrt ræktunarland.
Áveitur hafa skipt miklu máli í landbúnaði í yfir 5000 ár og haft áhrif á ýmis konar menningu. Aðferðin var fyrst notuð í Mesópótamíu 600 árum fyrir Krist. Áveitur geta haft ólík form eins og:
Áveitur eru svæði þar sem vatni er veitt í skurðakerfi frá upptökustað yfir engi annað hvort með flóðgörðum (flóðveita) eða með láréttum rennum sem ristar eru í jarðveginn (seytluveita). Í seytluveitum eru vatn leitt eftir skurðum á yfirborði annað hvort úr vatni eða vatnsfalli. Oft er svæðum skipt í hólf með flóðgörðum svo hægt sé að stjórna vatninu. Flóðáveitur eru ódýrari og þær eru gjarnan í mýrlendi á hallalitlum svæðum þar sem láta má vatn flæða um með aðstoð flóðgarða.
Sjálflæði eru náttúruleg flæðiengi.
Uppistöðuáveitur eru áveitur þar sem vatni er safnað í langan tíma í áveituhólf. Það geta verið haustáveita, vetraráveita og voráveita eftir því hvenær vatni er veitt úr áveituhólfi. Ef vatn rennur hægt á milli áveituhólfa er talað um uppistöðuseytlur. Þar sem vatni er úðað með dælum yfir ræktað land kallast rótarvökvun og regnáveita. Slíkar áveitur eru algengar í garðrækt.
Reistar voru miklar áveitur á Íslandi á Flóa og Skeiðum. Flóaáveitan og Skeiðaáveitan voru uppistöðuseytlur og vatnið í þeim á stöðugri hreyfingu milli hólfa. Vatninu var hleyðt á áveiturnar í maí og látið standa fram í lok júní. Hvert áveituhólf var yfirleitt hvílt þriðja eða fjórða ár.
Skurðir á áveitusvæðum voru annað hvort aðfærsluskurðir (áveituskurðir) sem leiða vatn frá upptökustað að því svæði sem veitt er á og affallskurðir (þurrkskurðir) sem tæma áveituengi. Til að halda vatni á áveitum þarf stíflur og flóðlokur í skurði. Þær voru úr timbri, steypu eða torfi. Sumar stíflur voru einnig notaðar sem brýr.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Áveita, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.