Ávaxtafluga einnig þekkt sem Bananafluga (fræðiheiti: Drosophila melanogaster) er skordýr af geirflugnaætt.
Ávaxtafluga | ||||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Karldýr Drosophila melanogaster | ||||||||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||||||||
Drosophila melanogaster Meigen, 1830 |
Ávaxtaflugur eru með rauð augu og gulbrúnar á lit með svarta hringi. Kvendýrin eru um 2.5 mm löng og karldýrin eru örlítið minni og bak þeirra er dekkra. Auðvelt er að kyngreina ávaxtaflugur á litamun.
Þroski ávaxtaflugu ræðst af hitastigi. Þroski (egg til fullvaxta flugu) tekur skemmstan tíma eða 7 daga við 28 °C. Þroski tekur lengri tíma við hærra hitastig (30 °C, 11 daga) vegna streitu við svo háan hita. Bestu skilyrðin eru við 25 °C 8,5 daga, við 18 °C tekur þroskinn 19 daga. Þroskatíminn lengist ef mergð flugna er mikil. Kvendýr verpa 400 eggjum, um fimm í einu inn í rotnandi ávöxt eða aðra hentuga staði t.d. rotnandi sveppi. Eggin sem eru um 0,5 mm löng klekjast út eftir 12-15 klukkustundir (við 25 °C). Lirfran vex í 4 daga (við 25 °C) og nærist á meðan á örverum sem valda rotnun ávaxtarins sem og af sykri hans. Lirfan púpar sig og eftir fjóra daga (við 25 °C) koma fullorðnar flugur úr púpunum.
Kvendýrin verða frjó um 8 - 12 klukkustundum eftir að þær skríða úr púpu.
Ávaxtaflugan er sú lífvera sem mest hefur verið rannsökuð. Ástæður eru þessar:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ávaxtafluga, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.