William Louis Petersen (fæddur 21.
febrúar">21. febrúar 1953) er bandarískur leikari og framleiðandi sem er þekktastur fyrir að leika Gil Grissom í sjónvarpsseríunni CSI: Crime Scene Investigation.
William Petersen | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | William Louis Petersen 21. febrúar 1953 |
Ár virkur | 1981 - |
Helstu hlutverk | |
Gil Grissom í CSI: Crime Scene Investigation Will Graham í Manhunter |
Petersen er fæddur og uppalinn í Evanston í Illinois. Faðir hans er dansk-amerískur að uppruna og móðir hans er þýsk-amerísk að uppruna. Útskrifaðist hann frá Bishop Kelly High School árið 1972. Komst hann inn í Ríkisháskólann í Idaho á fótboltastyrk. Á meðan hann var við nám við Ríkisháskólann í Idaho tók Petersen leiklistarnámskeið sem breytti alveg leið hans í lífinu. Yfirgaf hann skólann ásamt eiginkonu sinni Joanne árið 1974 og elti drama prófessor til Baskalands þar sem hann lærði sem Shakespeare leikari. Petersen hafði áhuga á baskneskri menningu og lærði hann baskneska tungumálið.
Petersen flutti aftur til Idaho til þess að verða leikari. Þar sem hann vildi ekki vinna í leikaralausri vinnu í, þá fór hann til Chicago og bjó hjá ættingjum sínum.
Petersen giftist langtíma kærustu sinni Gina Cirone í júní 2003. Á hann eina dóttur, Maite, frá fyrra hjónabandi. Petersen er mikill Chicago Cubs aðdáendi, og mætir oft á Wrigley Field að minnsta kosti einu sinni að ári til þess að syngja „Take Me Out to the Ballgame“. Árið 2004 lýsti Petersen í viðtali við Playboy Magazine nær-dauða lífsreynslu sem hann varð fyrir í kringum 1980s, sem gaf honum fullvissu að það væri til framhaldslíf eftir dauða.
Þann 23. febrúar 2009 var Petersen heiðraður með stjörnu á Hollywood Walk of Fame. Næstum allt leikaraliði og starfsmenn CSI: Crime Scene Investigation voru viðstaddir. Stjarna Petersens er staðsett við 6667 Hollywood Blvd, beint fyrir framan hinn fræga veitingastað Musso and Frank's Grill.
Petersen var mjög aktívur í leikhúsum og vann sér inn Actors Equity card. Sýndi hann við Steppenwolf Theatre Company, sem hann hefur verið meðlimur að síðan 2008, og er meðstofnandi að Remains Theater Ensemble sem einnig hefur að geyma Chicago leikarana Gary Cole og Ted Levine.
Fyrsta sjónvarpshlutverk Petersen var árið 1986 í The Twilight Zone. Síðan 2000 hefur frami Petersen aukist eftir að hann lék Dr. Gil Grissom í CBS réttar-rannsóknardramanu CSI: Crime Scene Investigation. Petersen tók sér hlé frá CSI í fimm vikur til þess að koma fram í Trinity Repertory Company uppsetningu á Dublin Carol í Providence, Rhode Island. Þann 30. maí 2007 var Petersen á Wrigley Field í samvinnu með WGN íþróttaútvarpsmönnum til þess að lýsa leika Chicago Cubs – Florida Marlins leiknum og nefndi hann að hann hefði séð CSI: The Experience á Museum of Science and Industry í Chicago. Var hann þá í níu-vikna hléi frá upptökum og sagði hann, að hann og samleikarar væru heppnir að vera hluti af svona vinsælli seríu á meðan þættir sem vinir hans koma fram í hætta eftir aðeins nokkra þætti.
Samkvæmt Michael Ausiello hjá TV Guide, þá hafði Petersen endurnýjað samning sinn hjá CBS til þess að koma fram í CSI fyrir 2008-2009 tímabilið, með um $600.000 dollara fyrir hvern þátt. Þann 15. júlí 2008 greindi Associated Press frá því að Petersen myndi hætta sem aðalleikari í 9. þáttaröð (þætti 10) til þess að fylgja eftir leikhúsferli sínum, en myndi koma aftur sem gestaleikari þegar á þurfti. Munn hann samt halda áfram að vera framleiðslustjóri við þáttinn.
Petersen lék í fyrstu Hannibal Lecter myndinni, þar sem hann lék FBI alríkisfulltrúann Will Graham. Þar sem hlutverk hans í Manhunter eftir Michael Mann var svo krefjandi tilfinningalega séð gerði hann allt sem hann gat til þess að losna við persónuna eftir að tökum lauk. Hann rakaði af sér allt skeggið, klippti hárið og litaði það ljóst. Einnig þá segist hann hafa gert þetta, vegna þess að þegar hann var að æfa fyrir leikrit í Chicago, kom tal hans alltaf út sem Graham; litaði hann á sér hárið þannig að hann gæti horft á sjálfan sig í spegli og séð aðra persónu.
Petersen afþakkaði hlutverk í Oliver Stone myndinni Platoon, þar sem hún myndi halda honum í Filippseyjum, frá fjölskyldu sinni. Í staðinn lék hann í sjónvarpsmyndinni Long Gone frá 1987 sem neðri deildar hafnarboltaleikmaður og umboðsmaður.
Lék hann lögreglumanninn William Friedkin's í spennumyndinni To Live and Die in L.A., Petersen kemur fram alveg nakinn, stuttlega. Var honum boðið hlutverk Henry Hill í Goodfellas en afþakkaði það.
Árið 1990 lék Petersen í þriggja-hluta míniseríu, The Kennedys of Massachusetts. Lék Petersen JFK, sendiherrann Joseph P. Kennedy. Hlaut myndin Emmy og Golden Globe-tilnefningar. Árið 1993 kom Petersen fram í annarri míniseríu, Return to Lonesome Dove og síðan í Fear árið 1996.
Lék hann í myndinni Mulholland Falls sem persónu er finnur sjálfan sig fá ofbeldisviðbrögð frá Los Angeles lögreglunni. Ennig lék hann í Kiss the Sky og í myndinni 12 Angry Men ásamt Courtney B. Vance, George C. Scott, Jack Lemmon og Mykelti Williamson.
Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1981 | Thief | Barþjónn á Katz & Jammer | sem William L. Petersen |
1985 | To Live and Die in L.A. | Richard Chance | sem William L. Petersen |
1986 | Manhunter | Will Graham | |
1987 | Amazing Grace and Chuck | Russell | sem William L. Petersen |
1987 | Long Gone | Cecil ´Stud´ Cantrell | Sjónvarpsmynd sem William L. Petersen |
1989 | Cousins | Tom Hardy | |
1990 | The Kennedys of Massachusetts | Joseph P. Kennedy | Sjónvarps míni-sería sem William L. Petersen |
1990 | Young Guns II | Patrick Floyd ´Pat´ Garrett | |
1991 | Hard Promises | Joey | sem William L. Petersen |
1992 | Passed Away | Frank Scanlan | |
1992 | Keep the Change | Joe Starling | Sjónvarpsmynd sem William L. Petersen |
1993 | Curacao | Stephen Guerin | Sjónvarpsmynd |
1993 | Return to Lonesome Dove | Gideon Walker | Sjónvarps míni-sería sem William L. Petersen |
1995 | Present Tense, Past Perfect | Jack | Sjónvarpsmynd sem William L. Petersen |
1995 | In the Kingdom of the Blind, the Man with One Eye Is King | Tony C. | |
1996 | Mulholland Falls | Jack Flynn, mafíu foringi | óskráður á lista |
1996 | Fear | Steve Walker | |
1996 | The Beast | Whip Dalton | Sjónvarpsmynd |
1997 | 12 Angry Men | Kviðdómari nr. 12 | Sjónvarpsmynd |
1998 | Gunshy | Jake Bridges | |
1998 | The Staircase | Joad | Sjónvarpsmynd sem William L. Petersen |
1998 | The Rat Pack | John F. Kennedy | Sjónvarpsmynd |
1999 | Kiss the Sky | Jeff | Sjónvarpsmynd sem William L. Petersen |
2000 | The Skulls | Ames Levritt | |
2000 | The Contender | Jack Hathaway | |
2001 | Haven | Jackson Connolly | Sjónvarpsmynd sem William L. Petersen |
2003 | CSI: Crime Scene Investigation | Gil Grissom | Tölvuleikur Talaði inn á |
2004 | CSI: Crime Scene Investigation – Dark Motives | CSI aðalrannsóknarmaður Gilbert ´Gil´ Grissom | Tölvuleikur Talaði inn á |
2006 | CSI: 3 Dimensions of Murder | Gil Grissom | Tölvuleikur sem William L. Petersen Talaði inn á |
2007 | CSI: Crime Scene Investigation – Hard Evidence | Gilbert ´Gil´ Grissom | Tölvuleikur sem William L. Petersen Talaði inn á |
2011 | Detachment | Sarge | Í eftirvinnslu |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1986 | The Twilight Zone | Edward Sayers | Þáttur: Need to Know/Red Show sem William L. Petersen |
1995 | Fallen Angels | George | Þáttur: Good Housekeeping sem William L. Petersen |
2007 | Without a Trace | Gil Grissom | Þáttur: Where and Why |
2000-2009 | CSI: Crime Scene Investigation | Gil Grissom | 193 þættir |
CSI: Crime Scene Investigation, Keep the Change og Hard Promises.
Broadcast Film Critics Association verðlaunin
Emmy verðlaunin
Golden Globe verðlaunin
PGA verðlaunin
Satellite verðlaunin
Screen Actors Guild verðlaunin
TV Guide verðlaunin
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article William Petersen, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.