Weimar-lýðveldið er heiti sem sagnfræðingar nota yfir lýðræði og lýðveldi í Þýskalandi á tímabilinu 1919 til 1933.
Lýðveldið var stofnað eftir þýsku byltinguna í nóvember 1918 og kom þjóðarráð saman í borginni Weimar þar sem stjórnarskrá fyrir Þýskaland var tekin upp 11. ágúst 1919. Stjórnarskráin var ekki numin úr gildi fyrr en eftir Síðari heimstyrjöldina en með lögum sem stjórn Nasista setti í febrúar og mars 1933 þá var lýðræði ekki lengur í Þýskalandi og er það talið marka endalok Weimar lýðveldisins og byrjun Þriðja ríkisins.
Hitler varð Kanslari Þýskalands 30. janúar 1933 og þinghúsið brann 27. febrúar. Eftir þinghúsbrunann voru afnumin ýmis mannréttindi sem Weimar stjórnarskráin kvað á um og Nasistastjórnin bannaði stjórnmálafundi og lét fangelsa og drepa kommúnista.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Weimar-lýðveldið, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.