Fornleifar eru allt það sem varðveist hefur frá gamalli tíð, meðal annars leifar fornra mannvirkja og annarra staðbundinna minja sem menn hafa gert eða mannaverk eru á en einnig hvers kyns manngerðir hlutir og verkfæri og átrúnaðarstaðir.
Samkvæmt íslenskum lögum eru fornleifar eldri en 100 ára .
Fornleifar geta meðal annars verið byggðaleifar, bæjarstæði, húsaleifar hvers kyns, svo sem kirkna, bænahúsa, klaustra og búða, leifar af verbúðum, naustum, verslunarstöðum og byggðaleifar í hellum; einnig vinnustaðir þar sem aflað var fanga, sel, verstöðvar, ból, mógrafir, kolagrafir, gömul tún- og akurgerði, áveitumannvirki og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita, gamlir vegir, stíflur, brýr, vöð, varir, hafnir og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og vitar og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra; varnarmannvirki; þingstaðir, hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð; áletranir, greftrunarstaðir og skipsflök.
Fornleifar eru ekki aðeins öll forn mannvirki heldur einnig staðir sem á einn eða annan hátt tengjast menningu og atvinnuvegum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Fornleifar, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.