Ættkvíslin Lupinus L.
og, sérstaklega, Norður-Amerísku tegundirnar var skift af Sereno Watson (1873) í þrjá hluta: Lupinus, Platycarpos, og Lupinnelus. Mismunur á búsvæði og fjöldi fræhirsla voru grunnur flokkunnarinnar. Meginhluti fjölærra og einærra tegunda frá Ameríku voru taldar til Lupinus. Nokkrar einærar tegundir með tvær legrými í fræhirslu og tvö fræ í belgnum (L. densiflorus, L. microcarpus, osfr..) voru taldar til Platycarpos deildar. Deildin Lupinnelus samanstóð af einni tegund (L. uncialis).
Verk Watsons var byggt aðallega á Norður-Amerískum tegundum og seinni fræðingar eins og Ascherson & Graebner (1907) byggðu á því og létu ná yfir allar lúpínur frá eystra og vestra heimshveli, og notuðu einnig fjölda fræja í belg til að greina á milli. Þeir lýstu tvemur undirættkvíslum, Eulupinus og Platycarpos. Flestar tegundirnar lentu í subgen. A. Eulupinus. Subgen. B. Platycarpos taldi nokkrar einærar tegundir frá austurhveli með tvö fræ í belg .
Núverandi flokkun heldur þessari flokkun að mestu, en notar nöfnin Platycarpos og Lupinus. Nú er undirættkvíslin Platycarpos (S.Wats.) Kurl. með einærar og fjölærar tegundir frá Ameríku, með að lágmarki tvö fræ í belg. Undirættkvíslin Lupinus inniheldur 12 tegundir frá Afríku og Miðjarðarhafi með fjögur fræ í bleg eða fleiri.
Flokkun Lupinus hefur alltaf verið flókin. Hversu margar sjálfstæðar tegundir eru til, eða hvernig þær flokkast innan ætthvíslarinnar er ekki ljóst. Plönturnar eru breytilegar og tegundirnar oft ekki vel aðgreinilegar frá öðrum. Sumar Amerískar tegundir eru kannski nær því að vera undirtegundir en að ekki. Mat á fjölda lúpínutegunda fellur almennt á milli 200 og 500. Ein heimild telur 267 tegundir á heimsvísu.
Fræhirslan inniheldur tvö eða fleiri fræ. Fræin eru almennt smá, með vanþroskað kím og lítið af fræhvítu. fræblöðin eru smá, með langan stöngul. Fyrstu eiginlegu blöðin eru stakstæð. Litningatala 2n = 36, 48, eða 96. Þessi undirættkvísl er með útbreiðslu umnorður, mið og suður Ameríku. Sumar tegundirnar eru ræktaðar (L. mutabilis, L. polyphyllus).
Hún samanstendur af eftirfarandi tegundum:
|
|
|
|
|
Í núverandi umfangi, telur undirættkvíslin Lupinus 12 tegundir frá Miðjarðarhafssvæðinu og Afríku með að minnsta kosti fjögur fræleg í belgnum:
|
|
Staða eftirfarandi tegunda er ekki staðfest:
|
|
|
|
Eftirfandi blendingum hefur verið lýst:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Tegundir lúpínu, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.